157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:22]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef líka svolítið gaman af þessum pælingum varðandi hversu aðgengilegt nýja kerfið er. Eftir því sem við vitum þá gengur þetta þokkalega. Maður á kannski ekki að vera að taka dæmi af 89 ára gömlum afa sínum sem keyrir um á rafmagnsbíl en hann hefur nú komist í gegnum þetta. Hann kann reyndar ekki á internetið og kann yfirleitt ekki á tölvu en þetta hefur gengið ágætlega hjá honum. Framkvæmdin skiptir auðvitað máli og ég kann að meta þá hugsun hjá þingmanninum að hann vilji reyna að sjá fyrir þessi vandræði sem almenningur mun lenda í til þess að vinna með nýja kerfið. En ég hef ekki svo miklar áhyggjur af því að þetta er allt frekar einfalt. En mig langaði líka að benda þingmanninum á — og hann er örugglega búinn að skoða þetta, hann er auðvitað mikill áhugamaður um lýðfræðilegar upplýsingar og það er margt um áhugaverðar upplýsingar í frumvarpinu; um mismunandi áhrif á mismunandi hópa, tekjutíundir, hjón og einstaklinga. Ég ætlaði nú bara af því að ég veit að þingmaðurinn hefur gaman af lýðfræðilegum upplýsingum hefur hann örugglega gaman af að kafa svolítið ofan í það, sérstaklega ef við ætlum að ræða þetta mál langt fram að jólum gætu þetta verið mjög góð gögn til að leika sér með.