157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:24]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Ég hjó eftir því að í upphafi ræðu hv. þingmanns velti hann því fyrir sér að það fyrirkomulag sem er til umræðu hér, þ.e. kílómetragjaldið, að eftir einhver ár væri þetta kannski hugsanleg leið sem við myndum nýta okkur. Það má vel vera. Ég velti því sömuleiðis upp og mig langar að spyrja hv. þingmann: Meðan við erum að vinna við það kerfi sem er í dag, þ.e. tvöfalda kerfið, þetta kerfi sem er boðað hér, kílómetragjald, varðandi flækjustig, varðandi innheimtu á gjöldum og annað, hefur þingmaðurinn gert sér einhverjar væntingar eða hugmyndir þess efnis hvort og hvenær þetta gjald sem við fjöllum um núna gæti komið til eðlilegrar gjaldtöku varðandi uppbyggingu á samgöngumannvirkjum?