157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:26]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir góða spurningu. Tæknin er auðvitað á fleygiferð og hlutirnir breytast býsna hratt og stundum í veldisvexti. Einhverjar breytingar fara af stað og áður en við vitum af lifum við við gjörbreyttar aðstæður. Í bílunum er þróunin býsna hröð og maður horfir t.d. bara í kringum sig núna á götum úti og maður sér að það er haugur af t.d. kínverskum rafbílum, nýjum merkjum sem maður hefur jafnvel aldrei heyrt af. Þeir eru farnir að vera mjög algeng sjón í umferðinni. Þessir hlutir geta því gerst býsna hratt ef framleiðslan er að verða hagkvæmari, tæknin að verða einfaldari og gervigreindin að taka yfir ýmsa þætti, hvort sem er framleiðslunnar eða þá bara notendaupplifunarinnar. Þetta getur gerst býsna hratt en þá held ég að það væri ekkert vitlaust að leyfa þá rafbílakerfinu sem er komið upp að hafa bara áfram sinn gang og stækka. Ef þessi ríkisstjórn vill hækka gjöldin þá getur hún gert það innan kerfisins en að leyfa því bara að vaxa eftir því sem rafbílaflotinn vex.