157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:27]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi gott svar. Í þessu samhengi langar mig að velta vangaveltum til hv. þingmanns í sama dúr og hv. þm. Ólafur Adolfsson var með hér áðan varðandi það hvað honum finnst um það þegar menn eru með rafbíla í hinum dreifðu byggðum og varla með veg. Eins og hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu, og hv. þm. Ólafur Adolfsson sömuleiðis, þá ætla ég að vitna til bónda norður í Bárðardal sem sagði við mig eitt sinn: Ég get alveg borgað gjaldið en þá væri ágætt ef þið hefðuð veg til að keyra. Hvort það sé ekki sá hlutur sem við erum að eiga við hérna, tæknin er komin en samgöngurnar hafa ekki fylgt á eftir á svo mörgum stöðum. Þannig að við getum séð fyrir okkur að það gerist innan nokkurra ára að tæknin segi bara: Heyrðu, já, þú gerðir þetta í dag. Og síðan verður bara lesið úr þessum kínversku bílum eða hvaðan sem þeir koma nú.