157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:29]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað hætt við að bílarnir verði í auknum mæli kínverskir. Það er auðvitað leiðinlegt fyrir okkur Evrópusinna, ekki Evrópusambandssinna en Evrópusinna, að svo sé, að þróunin sé þannig að okkar álfa sé að dragast aftur úr í þeirri framleiðslu. En í sambandi við bóndann í Bárðardal og hvernig það kemur við menn þegar hæstv. ríkisstjórn fer fram með svona hækkun eftir að menn hafa horft á byggðarlög sín sitja á hakanum gagnvart eðlilegum samgönguumbótum, að þessu sé skellt á borðið og sagt: Heyrðu, nú ætlum við að fara að rukka þig fyrir hvern einasta kílómetra og rukka þig meira en við erum að gera núna. — Hvaða tryggingu hafa menn fyrir því að þessi innheimta af hálfu ríkisvaldsins sé að fara að breyta nokkru um þær samgöngur sem þeir búa við? Ég fjallaði um það hérna að FÍB, hefði tekið þetta ágætlega saman. Það er alltaf verið að rukka meira og meira en það er ekkert endilega meira að fara í vegina. Þá eru menn auðvitað bara komnir í skattahækkanir með einhverja svona hliðarréttlætingu.