kílómetragjald á ökutæki.
Forseti. Hér fyrr í umræðunni var því fleygt fram að það væri góð bókunarstaða hjá bílaleigum. Raunveruleikinn er hins vegar sá að heilt yfir er bókunarstaðan fyrir næsta sumar bara alls ekki góð. Hún er bara alls ekki góð. Við erum að tapa samkeppnishæfni. Fækkun í komum ferðamanna er staðreynd. Það birtust nýjar tölur frá Isavia, held ég bara í gær, um að það verði fækkun í komum ferðamanna. Við vitum að Play féll í fyrra. Auðvitað hefur þetta áhrif. Þetta hefur áhrif eftir ýmis áföll sem hafa dunið á ferðaþjónustunni undanfarin ár. En þetta er líka svolítið sjálfskapað vandamál. Þegar við ákveðum að skattleggja ferðaþjónustuna í drep þá erum við ekki að hjálpa til. Írar hækkuðu til að mynda skatta á ferðaþjónustuna, hækkuðu virðisaukaskattinn um nokkur prósentustig, og hvað gerðist? Þeir byrjuðu að skattleggja sig út úr greininni, þ.e. fækkun í komum ferðamanna til Írlands árið 2026 er núna áætluð 9%. Það er fækkun.
Það er ekki fækkun alls staðar. Helstu samkeppnisþjóðir okkar, það er aukning þar í komum ferðamanna. Hversu mikið? Jú, það er aukning hjá Finnum um 15%. Þeir áfangastaðir sem eru helst í samkeppni við okkur eru Finnar og Norðmenn. Finnar vegna þess að þeir keppa við okkur um vetrarferðamennina. Ferðamenn hugsa: Ísland, Finnland? Já, núna er greinilega meira spennandi að þeir séu kannski ekki að skattleggja sína ferðaþjónustu í drep. Þannig að þeir eru upp um 15% á sama tíma og við erum niður. Norðmenn eru að taka sumartraffíkina frá okkur. Það eru norðurljós í Noregi eins og á Íslandi. Það er ýmislegt í Noregi sem við höfum upp á að bjóða. Þeir eru upp um 14%. Það sýndi sig fyrir ekki löngu síðan að þegar við tókum stórátak í að auglýsa norðurljósin þá jókst straumurinn hingað en Noregur tók eiginlega bara sömu auglýsingaherferð og auglýsti. Þá kom bersýnilega í ljós hversu mikill samkeppnisaðili Noregur er gagnvart ferðamönnum því að fólk vildi fara á norðlægar slóðir, sjá norðurljós, sjá það sama og Ísland og Noregur bjóða upp á. Þetta er erfitt fyrir okkur. Það er auðvelt að verðleggja sig út af markaðnum. Atvinnuleysi mun auk stóraukast ef við förum í þá vegferð að skattleggja ferðaþjónustuna um of. Það liggur fyrir. Það eru neikvæðar hliðarafleiðingar af þessu frumvarpi.
Svo var því einnig haldið fram hér fyrr í dag að það væri ekkert mál að ferðast um landið á rafmagnsbíl. Það er alveg rétt, við getum farið um allt landið, við getum stoppað, fengið okkur að borða, hlaðið bílinn, ekkert vesen, farið austur, norður, vestur ef við leggjum af stað héðan. En ef þú bætir 30.000 bifreiðum inn á kerfið þá eru innviðirnir augljóslega ekki tilbúnir. Það er ekki alveg það sama. Við erum að tala um bílaleigubíla, ef flotinn yrði að rafmagnsbílum eins og virðist vera tilgangur ríkisstjórnarinnar. En þau eru ekkert að gera í því. Þau eru ekki að auka við innviðina, ekkert að gera. Þá erum við að tala um bíla sem aka 700–900 milljónir kílómetra og það er engin smá orka sem þarf í það, það er mikil orka og enginn smá fjöldi af hleðslustöðvum. Þá er auðvitað ekkert hægt að ferðast auðveldlega miðað við innviðina sem eru í dag. Þeir eru ekki tilbúnir. Þá hafa 5–6 hraðhleðslustöðvar á Höfn lítið að segja. Þær hefðu í raun og veru ekkert að segja þó að þær væru 20 eða 70. Ef við myndum bæta 30.000 bifreiðum inn á kerfið þá þyrftum við að vera með allt aðra innviði. Fyrir utan það að í dag vill kúnninn ekki leigja rafmagnsbifreiðar. Það vantar ekki að bílaleigurnar vildu koma með í þetta, þær komu með í þetta en kúnninn vill ekki leigja þetta. Það gerist kannski í framtíðinni en ríkisstjórnin er ekkert að gera til að undirbúa, til að bílaleigurnar geti sagt: Það eru innviðir úti um allt, það eru hleðslustöðvar úti um allt og nóg rafmagn. Það er ekki staðreynd þannig að þetta er algerlega óraunhæft. Þess vegna segi ég bara að fyrst hljóð og mynd fara ekki saman þá stendur eftir að í raun og veru snýst allt um að hækka skatta og gjöld á bifreiðaeigendur.
Það er bara stefna Samfylkingarinnar í Reykjavík að hafa helst engar bifreiðar. Hvernig gera þeir það? Þeir þrengja götur í Reykjavík, ríkisstjórnin er að hækka skatta á bifreiðaeigendur, allt gert til að gera bifreiðaeigendum erfiðara fyrir. Og á hverjum bitnar þetta? Íslenskum fjölskyldum. Þetta frumvarp sem við ræðum hér í dag er skattur, kílómetragjöld, á allar bifreiðar sem fara í dag og taka bensín eða dísil á dælu. Nú er þetta aukið flækjustig. Þú þarft að fara fyrst á dæluna, borga bensínið þar og svo borgar þú kílómetragjöldin mánaðarlega. Það er búið að sýna sig að flækjustigið er mikið. Ekkert annað land ætlar að taka upp kílómetragjöld á næstu árum með þessum hætti. Hins vegar eru önnur lönd að skoða þetta. Þau ætla að taka þetta upp eftir nokkur ár, yfir nokkurra ára tímabil og þá eru þau að hugsa um rafmagnsbifreiðar. Við erum komin þangað.
Áðan var líka rætt að þetta yrði einfalt því að þetta væri eitt kerfi. En bara mælarnir í rafmagnsbifreiðum og dísil- og bensínbílum eru ólíkir. Flækjustigið er ekki það sama í rafmagnsbifreiðum en endalaust flækjustig ef við bætum þessu við. Það eru svona aftanívagnar, þessi stærð af bíl, stórir, litlir, þú ert að fara í Norrænu með bílinn, þú þarft að skrá hann út úr landinu — endalaust. Á meðan við erum í dag með kerfi sem virkar og þau borga sem nota. Ef þú ert á stórum trukk þá þarftu að taka meiri dísil og bensín og þú borgar skattana á dælunni. Þannig er það. Það er engu saman að jafna í þessu,hvort þetta eru dísil- eða rafmagnsbifreiðar. Kerfið virkar fínt fyrir rafmagnsbifreiðar. Við erum búin að loka því gati, fyrst verið er að tala um að loka gati. Allir bílar borga til vegasamgangna og meira að segja þannig að það sem bifreiðaeigendur borga í dag í skatta er mikið meira en er sett í vegakerfið nú þegar.
Ég hef líka komið inn á það að mér þykir umsagnaraðilar ekki fá nógu mikið vægi. Við vinnum málin í nefndum hér, það koma umsagnaraðilar og benda á að hlutir séu ekki gerlegir, benda á afleiðingarnar sem það hefur og maður hugsar: Ókei, þetta verður lagað. Svo er þetta ekki lagað. Meiri hlutinn lagar þetta ekki en heldur bara áfram eins og hann hafi ekki heyrt neitt af aðvörunarorðunum. Meira að segja þegar í ljós kemur að skattar muni ekki innheimtast og það kemur í ljós að neikvæð áhrif af frumvörpum verða mun meiri en jákvæð áhrif, þá er bara haldið áfram.
Það er náttúrlega alveg á hreinu að nú eru að koma í ljós, eins og sagt var, afleiðingar þess að 71. gr. þingskapalaga var beitt í sumar. Það var búið að vara við þessu. Af hverju hafa engir forsetar viljað beita þessu? Vegna þess að þetta hefur áhrif á öll önnur mál. Þetta hafði ekkert með veiðigjöld að gera því að allir voru tilbúnir að skoða þau. Við vildum bara að frumvarpið yrði tækt. Það var búið að benda á galla þar. Allar aðrar ríkisstjórnir hafa þurft að taka frumvörp, vinna þau betur og koma með þau aftur en þessi ríkisstjórn gat ekki hugsað sér að gera það. Hún beitti þessari grein og stöðvaði umræðuna. Afleiðingarnar núna: Meirihlutaþingmenn sjá fram á að þeir þurfi ekkert að hlusta á umsagnaraðila, þeir þurfi ekkert að taka of mikinn þátt. Ef einn til tveir dagar eru búnir í risastóru máli og það koma nýjar upplýsingar: skiptir ekki máli, þeir bíða bara eftir að umræðan verði stöðvuð. Hlustunarskilyrðin verða engin. Það eru afleiðingarnar af því sem gerðist hér í sumar. Hlustunarskilyrðin verða engin, þannig að eðlileg þingleg meðferð mála er ekkert eðlileg lengur. Það er vandamálið og þess vegna vil ég að þingmenn sem hér inni sitja og þeir sem heima sitja og fylgjast með fái innsýn í hvaða áhrif þetta frumvarp raunverulega hefur.
Þess vegna, með leyfi forseta, ætla ég að gefa umsagnaraðilum orðið og í þetta skiptið er ég með virkilega góða umsögn frá Hertz bílaleigu. Hún er löng og ég ætla að byrja á að fá að lesa aðeins upp úr henni, því að hún sýnir svo fram á raunveruleikann varðandi þetta frumvarp. Hér í innganginum kemur fram, með leyfi forseta:
„Bílaleiga Flugleiða ehf., sérleyfishafi Hertz á Íslandi, gerir með bréfi þessu eftirfarandi athugasemdir við fjárlög 2026. Bílaleiga Flugleiða – Hertz á Íslandi hefur starfrækt bílaleigu á Íslandi í 53 ár. Fyrirtækið hefur í sínum rekstri í dag um 4.400 bifreiðar.“ — Fyrirgefið aðeins innskotið. Ég held að það sé mikilvægt að lesa þetta fyrst til að átta okkur á stærðinni, umsvifunum sem við erum að hafa áhrif á hérna. Ég held áfram. — „Fyrirtækið rekur 15 afgreiðslustaði og umboð um allt land. Hjá fyrirtækinu og dótturfélagi þess störfuðu í sumar 206 starfsmenn. Fyrstu 9 mánuði ársins 2025 voru gerðir um 80.000 leigusamningar. Bifreiðar félagsins óku yfir 100 milljón km. á fyrstu níu mánuðum ársins. Það sem af er ári 2025 hefur Bílaleiga Flugleiða ehf. skráð og keypt bílaleigubifreiðar fyrir 6.324 milljónir kr. með vsk. Bílaleigan þarf að selja á árinu 700–800 bíla.“ — Það er óhætt að segja að hér sé um alvörurekstur að ræða. Ákvarðanir sem við tökum hér inni hafa áhrif. Við megum ekki gleyma því og það þarf að líta á hvaða áhrif þær hafa, hliðaráhrif og afleiðingar, slæmar og góðar. Það er ekki hægt að segja bara að við hækkum skatta og ekkert annað gerist. Það er auðvitað ekki þannig. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Bílaleiga Flugleiða - Hertz vill með þessari umsögn koma á framfæri alvarlegum áhyggjum vegna fyrirhugaðs frumvarps um upptöku kílómetragjalds og hækkun vörugjalda á bifreiðar, sem samkvæmt frumvarpinu á að taka gildi 1. janúar 2026. Boðaðar breytingar munu hafa miklar og alvarlegar afleiðingar fyrir rekstur bílaleiga á Íslandi og ferðaþjónustu á Íslandi. Breytingarnar munu hafa gríðarleg áhrif á dreifingu ferðamanna. Viljum við minna á að bílaleigubílar eru flugvélar landsbyggðarinnar. Munu breytingarnar hafa alvarleg áhrif á samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannalands.
Við viljum líka koma á framfæri vonbrigðum okkar með vinnulag hjá fjármálaráðuneytinu sem hefur ekki lagt í neina vinnu til að greina stöðu bílaleigugreinarinnar og áhrif sem boðað kílómetragjald og hækkun vörugjalda á bílaleigur getur haft á greinina og ferðaþjónustu um allt land. Ekki hefur verið lagt í neina teygnigreiningu, greiningu á fjárfestingagetu greinarinnar eða greiningu á endurnýjunarþörf greinarinnar.“ — Frú forseti, ég stoppa aðeins hér.
Hvað erum við að segja? Þetta er í umsögnunum og við erum samt að fara að samþykkja þetta. Það er ekki búið að breyta. Það eru engar greiningar að neinu ráði á því hvaða áhrif þetta hefur og í ofanálag, eins og kemur fram hér, bætast við vörugjöld upp á 7,5 milljarða. Þetta er of mikil skattheimta á bifreiðaeigendur. Það liggur bara alveg ljóst fyrir. Að fjármálaráðuneytið hafi ekki lagt í vinnu til að greina stöðu bílaleigugreinarinnar er auðvitað ekki boðlegt. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Samkvæmt Hagstofu starfa um 25.000 manns við ferðaþjónustu á Íslandi. Ferðaþjónustan er hins vegar alls staðar og virðist ráðaneytisstarfsfólk og alþingismenn ekki átta sig á þessu almennilega. Ferðaþjónustan er alls staðar. Málarar, smiðir, dekkjasalar, bílasalar, rúmsalar, verslunarmenn, sorphirðumenn, og svo mætti lengi lengi telja, eru allir háðir ferðaþjónustu. Má áætla að önnur 15–20 þúsund störf séu háð ferðaþjónustu. Fyrirvari á báðum þessum málum er gjörsamlega enginn.“ — Ég skýt inn í að í báðum málum er verið að tala um kílómetra- og vörugjöld. Ég held áfram. — „Nú þegar er búið að kynna verð fyrir næsta ár til ferðaheildsala og bílaleigumiðlara. Byrjað er að taka við bókunum fyrir næsta ár. Enginn ferðamaður sem hefur bókað hjá bílaleigum, hvort sem sá ferðamaður ætlar að koma til landsins í janúar 2026 eða ágúst 2026, hefur fengið neinar upplýsingar um að hann muni vera rukkaður um kílómetragjald. Því lendir stór hluti þessa km. gjalds á bílaleigunum sjálfum þar sem fyrirvarinn er enginn.
Lög um neytendavernd gætu gert það að verkum að fyrirvarinn sé það skammur að það standist ekki lög að innheimta kílómetragjald hjá þeim sem þegar hafa bókað. Alþjóðlegar bílaleigukeðjur, eins og t.d. Hertz, gætu hreinlega sagt nei með vísan til þessa.“
Ég vil segja varðandi þetta: Það er búið að innheimta stóran hluta af þessu. Hvað ætlast meiri hlutinn til að bílaleigurnar geri? Taki þetta allt á sig? Er þetta raunhæft? Af hverju er gildistíminn eftir nokkra daga? Er ætlast til að fólk sé að afgreiða þetta milli jóla og nýárs í fyrirtækjunum, undirbúa tölvukerfin, hafa samband við viðskiptavinina? Hver er hugsunin? Þetta gengur augljóslega ekki upp, herra forseti. Ég á eftir að fara yfir marga aðra þætti sem virka ekki í þessu frumvarpi og bið því forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.