kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða og yfirgripsmikla ræðu þar sem er fjallað svolítið mikið um flækjustig atvinnulífsins og áhrifin af þessu. Það hefur komið mér svolítið á óvart við umfjöllun nefndarinnar og í mestöllu kynningarefni og útfærslunni á þessu og rökunum með þessu að það er alltaf verið að miða við fjölskyldubílinn. Ég geri mér grein fyrir því að núverandi kílómetragjaldskerfi, sem er fyrir rafmagnsbíla, er að langmestu leyti hinn venjulegi fjölskyldubíll, rafmagnsfjölskyldubíll, oft bíll númer tvö. Það er, eins og kemur fram í frumvarpinu sjálfu, oft fólk í hærri tekjutíundum og kannski með meiri tækniþekkingu og annað. Það kerfi hefur svona sloppið. En við höfum fengið í meðförum nefndarinnar töluvert af athugasemdum um flækjustig og furðulegar uppákomur þar, um marga reikninga og fjölda bakreikninga, eftirágreiðslur með álagi og ýmislegt vesen. En akkúrat þessi atriði sem hv. þingmaðurinn var að fara yfir hér, það hafa einhvern veginn ekki komið, ekki í neinu kynningarefni, minnisblöðum eða svörum frá ráðuneytinu, einhverjar skýringar á því hvernig eigi að mæta þessum áhyggjum atvinnulífsins, hvort þetta sé vandamál eða ekki. Fyrirtækin, ríkisstofnanir og annað sem eru með svona marga bíla til umráða, þegar er verið að nota ökutæki í annað en venjulegt heimilishald; hvert er flækjustigið og annað slíkt? Hefur hv. þingmaður upplifað þetta eitthvað öðruvísi en ég varðandi þetta atriði?