157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:48]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Ég hef í raun og veru ekki upplifað þetta neitt öðruvísi og meira að segja þannig að minnisblað frá ráðuneytinu, og þá má segja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, var með þeim hætti — það hefur mögulega verið í vörugjöldunum en þetta er auðvitað svolítið unnið saman gagnvart bílaleigunum til að mynda — að það var algjörlega valið hverju yrði svarað þegar þeir voru að bregðast við umsögnunum. Það er auðvitað algerlega óboðlegt. Það er óboðlegt fyrir okkur sem erum að vinna í nefndinni, það er dónalegt gagnvart umsóknaraðilum og það sýnir líka málefnaþurrðina. Þau hafa ekki góðan málstað að verja. Það sem ég held að hafi gerst hérna er að fyrst var þetta hugsað þannig að það þyrfti að finna leið til að þeir bílar sem voru ekki að borga lengur fyrir vegina, tóku ekki þátt, rafmagnsbifreiðar, að þeir borguðu og tækju þátt. Og það var gert. Það var gert með kílómetragjaldi á rafmagnsbifreiðar. Svo geta þessir eyðslugrönnu bílar og þetta kerfi í dag á dælunum bara gengið sinn gang þar til tækninýjungar eru orðnar það miklar. Þá veltir maður fyrir sér: Af hverju á þá að halda áfram með þetta? Það var búið að loka þessu svokallaða gati, allir farnir að borga fyrir vegina sem keyrðu um á vegunum. Eina skýringin sem ég hef núna er að það sé bara orðin pólitísk ákvörðun að skattleggja bíla það mikið að, ég veit það ekki, alla vega á höfuðborgarsvæðinu að ýta fólki borgarlínu, mögulega. Alla vega fer hljóð og mynd ekki saman eins og hv. þingmaður hefur svo oft farið yfir. Tilgangur frumvarpsins, þar fer hljóð og mynd ekki saman.