kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott svar í þessu. Já, það er einmitt þetta, að það er alveg ótrúlegt hvernig er hægt að miða þetta frá þröngu sjónarhorni. Þrátt fyrir ítrekaðar umsagnir, eins og hv. þingmaður kom inn á í andsvarinu, og þrátt fyrir ítrekaðar spurningar okkar í nefndinni þá koma engin rök fyrir þessu eða hvernig eigi að leysa úr þessu, hvernig eigi að koma til móts við þetta og ekkert áhrifamat, eins og áhrifamat á atvinnustarfsemina, áhrifamat á landsbyggðina, áhrifamat á íþróttaiðkun barna og allt þetta. Þetta vantar allt.
Þá er líka annað sem ég hef miklar áhyggjur af og langaði að bera upp við hv. þingmann. Það verður mikið verk að vinna fyrir næstu ríkisstjórn að vinda ofan af öllum þeim skattabreytingum sem þessi vinstri skattastjórn hæstv. forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, er að koma á. Það verður mikið verk að vinna að vinda ofan af þessu. Ég held að þetta sé einn sá skattur sem skaðar hvað mest fyrst. Þetta hefur svo miklar afleiðingar. Þetta er svo mikil kerfisbreyting einhvern veginn að það verður miklu erfiðara að vinda ofan af þessu ef illa fer. Það er svolítið það sem ég hef áhyggjur af, að við innheimtum þetta með svona stuttum fyrirvara, eins og hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu, og séum einhvern veginn að fara að breyta öllum kerfum, brjóta upp áratugagamalt kerfi sem hefur verið að virka þó að það sé kannski ekki alveg það einfaldasta eða ákjósanlegasta. Það verður svo erfitt að bakka til baka og skaðinn verður svo mikill.