kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég tek undir að þetta er svona mál sem verður erfitt að vinda ofan af. Við getum setið uppi með þetta í mörg ár ef af þessu verður. Á meðan það er mjög slæmt að verið sé að hækka vörugjöld um marga milljarða þá er það kannski eitthvað sem ný ríkisstjórn, sem væri ekki svona skattasjúk, gæti undið ofan af á miklu auðveldari hátt. Það sem er líka óþægilegt við þetta er, eins og með svo mörg mál, að það er ákveðin blekking í gangi, að þetta sé bara eitthvað til einföldunar og að þetta verði þægilegra fyrir alla. Í staðinn er raunveruleikinn sá að þetta er gríðarlegt flækjustig og sérstaklega, eins og hv. þingmaður sagði, fyrir atvinnulífið. Það er líka óraunhæft að taka þetta upp eftir nokkra daga, algerlega óraunhæft. Samt erum við hér korter í jól að ræða þetta frumvarp, frumvarp sem við vitum að er algerlega óraunhæft að taka upp með sómasamlegum hætti 1. janúar. Það ætti auðvitað að koma fram í minnisblöðunum frá fjármálaráðuneytinu. Þær upplýsingar koma ekki. Það hentar ekki. Þetta eru 3,3 milljarðar en það eru miklu meiri áhrif sem þetta hefur, eins og við erum búin að fara yfir, inn í allt, í mörg kerfi, hliðarkerfi, inn í ferðaþjónustuna. Hefði ekki verið nær að ríkisstjórnin hefði bætt við útgjaldahlið ríkissjóðs 140 milljörðum í staðinn fyrir 143 milljörðum og sleppt þessu eða bara staðið alveg við kosningaloforðin um að hækka ekki skatta og hefði bara aukið útgjöld um 110 milljarða? Nóg er það nú samt. Það verður erfitt að vinda ofan af þessum breytingum. Þegar síðasta skattastjórn var hérna, vinstri stjórnin 2009–2013 — við erum enn að vinda ofan af því. Hér voru kosningar. Vinstri flokkar fengu ekki brautargengi. Þessir flokkar fengu brautargengi af því að þeir lofuðu að hækka ekki skatta, þeir lofuðu að taka til og lækka skuldir og þeir eru að svíkja þetta allt.