157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:55]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegi forseti. Hér er verið að ræða breytingu á lögum um kílómetragjald, hvernig notkun á vegakerfinu er reiknuð. Svo er að vísu í þessu breyting á kolefnisgjöldum líka sem hækka skipagasolíu o.fl., þannig að það er ýmislegt í þessu. Þetta er skattahækkun upp á 3,3 milljarða sem hefur hingað til verið kynnt sem tekjuhlutlaus breyting, kerfisbreyting. Þetta var kynnt þannig síðastliðið vor að þetta ætti að vera tekjuhlutlaus kerfisbreyting til að bregðast við einhverju og ég hef átt mjög erfitt með að skilja við hverju er verið að bregðast og hver hinn raunverulegi tilgangur með þessu er. Núna er búið að hækka bæði kolefnisgjöldin í þessu frumvarpi og það er verið að hækka kílómetragjöldin þannig að það má áætla að skip fari að borga 1,1 milljarði meira, sem er áætlað samkvæmt þessu, í kolefnisgjöld. En það vill nú bara svo til að það eru alltaf fleiri og fleiri skip farin að sigla til Færeyja þar sem þau fá 50% afslátt af kolefnisgjöldum eða ETS-gjöldum. Nú síðast heyrði ég að björgunarskipin væru farin að sigla þangað. Landhelgisgæslan var farin að fara þangað, uppsjávarskipin sem voru á veiðum í nágrenninu eru dugleg að taka þar olíu. Maður hefur heyrt að skemmtiferðaskipin sem sigla hér hringinn í kringum landið hafi eitt og eitt farið þangað að taka olíu og núna eru björgunarskipin farin að fara. Þarna er enn eitt dæmið um ofskattlagningu sem leiðir til hegðunarbreytingar sem dregur úr skatttekjunum hér og öðrum umsvifum, sem er ekki gott.

Ef markmiðið er að draga úr losun þá er ekkert sem dregur meira úr losun heldur en fjárfesting í nýrri tækni, hvort sem við ætlum að tala um skip eða bíla eða flugvélar. Ef við viljum raunverulega draga úr losun þá eigum við að draga úr skattlagningu á atvinnulífið svo að atvinnulífið hafi fjárfestingargetu til að kaupa nýrri og umhverfisvænni bíla, nýrri og umhverfisvænni skip, nýrri og umhverfisvænni flugvélar, en hér erum við að skattleggja þau bæði með kolefnisgjaldi og kílómetragjaldi, setja flækjustigið og búa til báknið — algerlega óskiljanlegt. Ekki nóg með að við séum að setja þessar auknu álögur á atvinnulífið sem býr við mjög erfiðar aðstæður í dag, atvinnuleysi í landinu hækkar, afkoman hefur dregist saman, sérstaklega í ferðaþjónustunni — og hvað ætlum við að gera um leið og við hækkum álögurnar? Jú, við ætlum að fela þeim að sjá um innheimtuna á þessum álögum. Og hvernig eiga þau að innheimta þetta? Með gríðarlegum kostnaði.

Ég hugsa að innheimtukostnaðurinn sem atvinnulífið, og að vísu ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki, mun bera af þessu gjaldi — líka af því að það er ekki hægt að setja þetta allt út í verðlagið strax. Þeir sem eru að leigja út ökutæki geta ekki sett þetta út í verðlagið, eða í byggingarframkvæmdum þar sem er búið að bjóða út miðað við óbreytt kerfi og annað slíkt. Bara þessi kostnaður er meiri árlega heldur en hann á að skila aukalega í ríkissjóð, meiri kostnaður fyrir atvinnulífið. Það var mjög augljós reikningur bara hjá bílaleigunum og þá er ég ekki að tala um alla byggingaraðilana, allar ríkisstofnanirnar og alla aðra sem eru með öðruvísi atvinnustarfsemi. Það hljóp á milljörðum. Það er 2% geymslugjald hjá kortafyrirtækjunum, það er ekki nema 70% innheimta af þessum gjöldum þegar hægt er að bæta þeim ofan á og það er nú ekki alltaf. Það eru öll tölvukerfin, allir færsluseðlarnir, allt fólkið sem þarf að sjá um umsýsluna og annað slíkt í þessu. Þetta er gríðarlegur kostnaður sem fer bara beint á atvinnulífið og það stendur ekki stafur um þennan kostnað, sem hleypur á milljörðum, í einni einustu greinargerð eða minnisblaði ráðuneytisins eða áliti meiri hlutans, meiri kostnaður heldur en gjaldið skilar í ríkissjóð. Það er ekki stafur um þetta hjá stjórnvöldum. Þau hafa engar áhyggjur af þessu. Það er illa komið fyrir íslensku atvinnulífi þegar þetta er skilningurinn og áhuginn á aðstæðum þeirra hjá stjórnvöldum.

Við fundum það svo skýrt í meðförum efnahags- og viðskiptanefndar hvernig sviðsmyndin var breytt. Andstaðan var mikil við kílómetragjaldið í vor hjá öllum hagaðilum; þetta væri flókið, þetta væri dýr innheimta, aðdragandinn væri ekki nógu mikill, þetta færi inn í verðteygnina og allt þetta sem við erum búin að fara yfir hér í dag. Nú er sviðsmyndin allt önnur. Það er þetta, plús mikill samdráttur í atvinnulífinu og það á að setja á vörugjöld á sama tíma. Það á að hækka gjöld á umferð fyrir allt að 12 milljarða á einu bretti. Frá því að fjalla í vor um tekjuhlutlaust breytingarferli erum við að tala um 12 milljarða álögur á umferðina. Það er svolítið mikil breyting á stuttum tíma. Við fundum að umsagnirnar út af þessu máli voru margfalt fleiri nú. Oftast hafa fyrirtækin látið duga að hagsmunasamtökin sem þau sameinast um komi og sendi inn umsögn, stundum eru bara heildarsamtökin, eins og Samtök atvinnulífsins, látin duga meira að segja en ekki öll undirsamtökin og undirhóparnir látnir koma. Nú kom bara frá þessu öllu saman og hagaðilum að þeir hefðu verulegar áhyggjur af þessari breyttu sviðsmynd. Áhyggjurnar voru gríðarlega miklar og þær voru vel rökstuddar en eins og ég sagði áðan er ekki brugðist við þessum áhyggjum varðandi innheimtukostnaðinn með einni setningu. Það er tekið smá tillit varðandi bílaleigurnar, úr 30 dögum í 15 daga, hvenær þær megi skipta, það voru nú allar áhyggjurnar. Vissulega er búið að laga aðeins til flækjustigið á milli frumvarpa frá því í vor og þangað til núna varðandi aftanívagnana og svo er búið að bregðast við landbúnaðinum. En allur þessi innheimtukostnaður, áhrif á kostnað alls atvinnulífsins og allt þetta; ekki stafur.

Svo er annað, bara til að ljúka þessu áður en ég fer í næsta, og það er þetta sem ég vildi líka segja, að allur rökstuðningur með þessu og öll viðmið og öll dæmi eru alltaf miðuð við venjulegan fjölskyldubíl. Þetta hefur ekkert góð áhrif á venjulegan fjölskyldubíl. Þetta er eitthvert svona kerfi sem mér heyrist fólk almennt ekki nenna að hafa. Þetta hefur gengið betur í rafmagnsbílunum því að upphæðirnar eru lægri en það er almennt bara fjölskyldubíllinn hjá fólki í hærri tekjutíundum, með meiri tækniþekkingu og annað slíkt, miklu afmarkaðri hópur. En það er ekkert dæmi eða hugsað um hvernig þetta er fyrir atvinnustarfsemi. Það er númer eitt, tvö og þrjú sem ég hef áhyggjur af.

Svo er annað sem ég hef miklar áhyggjur af og hefur kannski ekki verið mikið rætt hérna. Í dag mætir maður bara á dæluna og ef maður á 10.000 kall þá getur maður sett 10.000 kall á bílinn og þá keyrirðu bara þangað til nálin er komin á núll. Svo áttu ekki meiri pening og getur ekki keyrt meira og ert búinn að borga öll gjöld, allt klárt. Ef kílómetragjaldið kemur til og þú átt 10.000 kall, ferð á dæluna og dælir óvart fyrir allan 10.000 kallinn þá ertu enn þá að borga til ríkissjóðs virðisaukaskatt og kolefnisgjald. Svo ætlarðu að taka út og í staðinn fyrir olíu- og bensíngjaldið þá ætlar þú að breyta því í kílómetragjald. Þú þarft þá að borga það öðruvísi og til þess að geta borgað það þarftu að skrá notkunina á bílnum þínum. Svo klárast eldsneytið fyrir 10.000 kall. Þú kemst vissulega mikið lengra, fleiri kílómetra, og þá færðu reikning um mánaðamótin frá Skattinum sem gefur ekkert eftir: Þú skuldar hátt í 10.000 kall líka í kílómetragjald, vinur — sem þú gerðir ekki ráð fyrir, kominn í skuldafangelsi.

Þarna hef ég áhyggjur af fólkinu sem er með minna á milli handanna. Það er verið að veiða það í gildru. Þetta getur verið mjög alvarlegt atriði. Í staðinn fyrir að borga allt á staðnum í dag — og ég veit að það er mjög algengt núna, ég hef heyrt fjölda dæma um að fólk skrái þetta ekki reglulega. Það verður mörgum á að vera ekki nógu duglegir að skrá. Ég hef heyrt að svona 50.000–80.000 kr. bakreikningur sé algengur. Eins og kemur fram hérna þá eru það efstu tekjutíundirnar sem keyra um á rafmagnsbíl og þar eru lægri upphæðir. Ef sambærileg dæmi eru að gerast á hærra gjaldinu þá erum við að tala um tugþúsundir króna sem fólk er kannski ekki borgunarfólk fyrir. Þá erum við að fara að búa til skattaskuldir úti um allt. Mér finnst þetta ekki sanngjarnt gagnvart fólki sem getur lent í þessu. Til að toppa þetta rugl algerlega máttu bara skrá kílómetrana á 30 daga fresti og ef þú hefur keyrt meira einn mánuðinn og skráir það þá færðu ekki rukkun fyrir því fyrr en mánuðinn þar á eftir og þá þarftu að borga álag frá Skattinum. Þú þarft að borga álag frá Skattinum fyrir að það leið einn mánuður sem þú borgaðir færri kílómetra. Þetta hefur Skatturinn hingað til ekki verið tilbúinn að fella niður. Þetta tók ég upp á nefndarfundi og er með staðfest dæmi hér, mjög nýlegt dæmi og það hefur komið til fjármálaráðuneytisins.

Að við séum að búa til skattkerfi sem er svona flókið, veiðir fólk í gildru, er ófyrirsjáanlegt og svona kostnaðarsamt, ég á bara bágt með að trúa því. Á sama tíma vorum við að ræða um vörugjöld sem áttu að einfalda skattkerfið, fækka skattaglufum. Það fer aldrei saman hljóð og mynd. Hér er sagt að þetta sé svo gott fyrir tekjulægri af því að þeir eru meira á bensín- og dísilbílum en í vörugjaldafrumvarpinu ætlum við að hækka bensín- og dísilbílana svakalega í verði, bæði nýja og eftirmarkaðinn, og gefa efstu tekjutíundunum skattafslátt með því að afnema vörugjöld af rafmagnsbílum. Ég er ekkert að segja að ég sé á móti því að afnema vörugjöld af rafmagnsbílum, ég vil bara afnema vörugjöld af öllum bílum. Ég vil afnema öll gjöld sem hægt er. Ég er bara að benda á hvernig hljóð og mynd fara hvergi saman í þessu. Hér er ekki komið vel fram við fólk sem er kannski ekki fjárhagslega vel statt.

Svona eru mörg, mörg atriði. Ég á eftir að fara yfir nokkur atriði í viðbót og bið því virðulegan forseta um að bæta mér aftur á mælendaskrána. Þar ætla ég kannski að fara svolítið yfir það, sem ég kom aðeins inn á í andsvari áðan, hversu erfitt verður að vinda ofan af þessu af því að þetta er breyting sem mun skaða strax og er erfitt að leiðrétta ef illa fer.