157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[23:10]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég get tekið undir ýmsar áhyggjur sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason hefur og þá sérstaklega af til að mynda tekjulægri hópum þar sem þú ert ekki lengur bara að spá í hvort þú sért búinn að borga bensínið, þú ert allt í einu kominn með skattinn á bakið. Það eru bara svo margir þættir í þessu frumvarpi sem eru óþarfaflækjustig. Við þurfum við ekki að fara í þessa vegferð. Við erum að stækka báknið í leiðinni. Við erum að auka við eftirlitskerfið á sama tíma og það veitir ekki af að draga úr ríkisbákninu. Það sem mig langaði aðeins að ræða við hv. þingmann er það sem hann kom aðeins inn á en það er skipagasolían. Nú hefur hv. þingmaður verið aðeins lengur á þingi en ég en mér finnst eiginlega alveg ótækt að við séum að ræða hér frumvarp um kílómetragjöld og inni í því er verið að hækka skipagasolíuna, þ.e. kolefnisgjöldin, og það er undir þeim formerkjum að það þurfi að fjármagna vegina. Skip keyra ekki á vegunum. Af hverju er verið að blanda þessu þarna inn í? Er þetta til að fela það að mati hv. þingmanns? Er það af því að ríkisstjórnin telur að ef það eru einhverjar álögur á sjávarútveginn þá sé það svo vinsælt í þeirra hópi að kílómetragjöldin renni saman með og þá verði svo mikill stuðningur við þetta frumvarp af því að verið er að hækka skatta á sjávarútveginn? Eða hver er skýringin á því að við séum að ræða eitthvað sem heitir kílómetragjöld á bifreiðar, sem er hugsað fyrir vegina, og þetta sé þarna inni? Hefur hv. þingmaður einhver svör við því?