157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[23:12]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa góðu spurningu og mikilvægu vangaveltur um það hvernig stendur á þessu. Það er nefnilega svolítið slæmt að þetta hafi farið þarna með af því að kílómetragjaldafrumvarpið er svo flókið og það er svo efnismikið og vankantarnir svo margir að svona atriði hafa fengið minni umfjöllun í nefndinni. Það er aðallega einn umsagnaraðili sem hefur komið inn á akkúrat þetta atriði og fjallað beint um kolefnisgjöldin. Ég geri svolítið ráð fyrir því að þetta hafi hangið þarna inni af því að þegar kílómetragjaldið kom fyrst þá var verið að gera heildarbreytingar á kerfinu, hvernig væri greitt fyrir umferð. Kolefnisgjaldið var þá sér. Þetta kom eitt inn, þ.e. ekki á sama tíma og einhver bandormur þar sem á að hækka kolefnisgjaldið, ef það á að hækka það yfirhöfuð. Ég held að verðlagsbreytingin sé þá bara látin fylgja en hún ætti raunverulega að vera annars staðar. Þetta hefur örugglega byrjað á að vera með í upphafi af því að það var verið að stilla af kílómetragjaldið og kolefnisgjaldið með afnámi olíu- og dísilgjaldsins. Það er eina skýringin sem ég get áttað mig á. Í öllum þessum umræðum og umfjöllun í nefndinni hefur þetta einhvern veginn ekki mikið verið rætt, annað en að það komu umsagnir sem bentu á að þessi hækkun á kolefnisgjaldi drægi úr fjárfestingargetu til að kaupa umhverfisvænni vélar og að hún ýtti undir hegðunarbreytingu eða skattasniðgöngu með því að taka eldsneyti í Færeyjum.