157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[23:15]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svarið. Þetta er samt engin smá hækkun. Þetta er 60% hækkun á skipagasolíunni, frá því sem var sett á 1. janúar og tók gildi núna. Þetta er því komið yfir 2 komma eitthvað milljarða og samtals eru þetta yfir 5 milljarðar á greinina í þessi gjöld, í einhvers konar kolefnisskatta. Það er ekkert smá á grein sem er bara mjög framarlega þegar kemur að sjávarútvegi, grein sem stendur sig gríðarlega vel í að finna betri lausnir um leið og þær eru til. En þessi hækkun kemur inn í þetta frumvarp og það er eins og það sé ekkert mál að hækka aukalega. Í viðbót við allar aðrar hækkanir og álögur sem sjávarútvegurinn hefur mátt þola þá er milljarði hent inn í frumvarpið um kílómetragjald á bifreiðar. Þetta er alveg með ólíkindum.

Hv. þingmaður ræddi um að sviðsmyndin væri orðin önnur, að það væri samdráttur. Það er heldur betur. En sviðsmyndin er líka önnur vegna þess að vörugjöldin bættust við, 7,5 milljarðar á bifreiðar í viðbót við þetta kílómetragjald. Ég held að þess vegna hafi umsögnum kannski fjölgað. Þetta var bara allt of mikið. Þetta hefur svo neikvæð áhrif. Því spyr ég: Er ekki orðið tímabært núna — það liggur alveg í augum uppi að tekjurnar eru ekki að fara að skila sér og það er búið að brjóta stöðugleikaregluna — í staðinn fyrir að eyða tíma í að ræða þetta hér að við förum frekar að eyða tíma í að finna út úr því hvernig fjárlaganefnd ætlar að draga úr útgjöldum til að brjóta ekki stöðugleikaregluna og koma með frumvarp því tengt? Er það ekki það sem við þurfum að gera núna að mati hv. þingmanns?