157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[23:17]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er algerlega augljóst að þetta getur bara ekki gengið. Þetta getur ekki farið vel, svona svakalega brattar skattahækkanir á almenning og fyrirtæki í landinu. Þetta einhvern veginn leggst ekki saman, bara kílómetragjaldið og vörugjöldin, það magnar. Þetta er veldisvöxtur á áhrifum myndi ég segja. Eins og ég kom inn á hækka sumar gjaldahækkanir bara gjöldin og álögurnar og breyta ekki miklu öðru en kílómetragjaldið eykur svo rosalega mikið kostnaðinn við að greiða skattinn. Það er ekki bara að skatturinn hækki, ekki bara að það hafi áhrif á eftirspurnina hjá fyrirtækjunum, nei, kostnaðurinn við það er gríðarlegur og eins flækjustigið. Það er svo alvarlegt.

Ég tek líka undir með hv. þingmanni að ástæðan fyrir því að við erum að ræða allar þessar skattahækkanir er að hæstv. ríkisstjórn, hin samhenta verkstjórn, þarf að fara dýpra í vasa okkar almennings af því að hún getur ekki komið sér saman um hvernig hún eigi að hemja útgjaldavöxtinn eða fara betur með opinbert fé. Hún bara getur ekki komið sér saman um það. Því er eina leiðin að fara í vasana okkar með skattahækkunum þegar við ættum að vera að ræða hvernig er hægt að fara betur með fjármuni, hagræða og fara betur með opinbert fé. Samheldna verkstjórnin, sem kallaði eftir hagræðingartillögum, hefur ekki enn þá komið með eina, ekki eina útfærða hagræðingartillögu.