157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[23:40]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta var athyglisverð ræða. Ég get ekki sagt að ég hafi verið hrifin. Annað eins samansafn af öfugmælum hef ég ekki heyrt lengi og ég held að mér endist ekki andsvörin til að fara yfir þau. Fyrst vil ég nú reyna að verja störf nefndarinnar sem fékk þetta frumvarp til umsagnar. Hér er nefndin vænd um að vera einhver stimpilpúði, að vinna ekki vinnuna sína og að engar breytingar séu gerðar. Ég verð að fá að verja nefndina. Í vor þegar nefndin fékk frumvarpið til skoðunar voru gerðar 29 breytingartillögur við frumvarpið og því ekki um neina stimpilpúðanefnd að ræða. Nefndin vann þetta vel og faglega og það var málefnalegt starf í alla staði. Hver og einn nefndarmaður hefur komið hér upp í dag og borið þann vott um störf nefndarinnar. Nefndin fékk frumvarpið aftur til umfjöllunar núna í haust, í byrjun október, og við höfum unnið þetta hratt og vel — fyrst og fremst vel. Við fengum 46 umsagnir, tókum inn gesti og unnum þetta vel. Niðurstöðurnar eru 18 breytingartillögur sem liggja hér frammi, hafi þingmaðurinn ekki kynnt sér þær. Ég hafna því alfarið að um einhverja stimpilpúðavinnu sé að ræða. Það hefur virkilega verið hlustað á umsagnaraðila, gerðar breytingar sem við eiga, sem nefndin taldi skynsamlegar. Ég bið því hv. þingmann að taka þau orð sín til baka að hér sé ekki unnið faglega. Ég hafna því alfarið.