kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég skal með glöðu geði taka það til baka. Þegar ég var að ræða þetta þá átti ég ekki sérstaklega við þessa nefnd heldur almennt hvað væri að gerast í þinginu og hvernig þetta hefði verið hér í vor og maður hefur orðið vitni að. Þá er ég kannski fyrst og fremst að vitna til þeirrar nefndar sem ég þekki best til í. Mér þykir leitt að formaður nefndarinnar, sem ég hrósaði fyrir að sitja hér í kvöld, skyldi eyða öllum fyrri hluta spurninganna í þennan þátt. Aðalatriðin standa eftir og þau eru miklu mikilvægari. Ég vil nota þessa stund sem ég hef hér til að hvetja nefndina til þess að vinna þetta betur. Það er búið að gera heilmargar breytingartillögur en eftir standa samt öll þessi stóru atriði sem atvinnulífið og hagsmunaaðilar hafa gríðarlegar áhyggjur af. Það eru meginmálin og þar hafa ekki verið gerðar breytingar. Það er það sem þarf að gera. Það þarf að svara þessu kalli. Það hljóta allir að sjá að þetta getur ekki orðið að lögum núna. Við verðum að finna lausn. Ég held að við séum í raun í mjög breiðri samstöðu um það í þinginu að við viljum finna einhverja varanlega lausn á því að umferðin greiði fyrir uppbyggingu í vegakerfinu. Ég held að það sé hægt að ná alveg fínni samstöðu um það. En það er ekki hægt að ná því um þetta mál eins og það er útfært. Það er útilokað. Það er ekkert annað en ósanngirni að ætla að afgreiða það óbreytt eins og það lítur út núna.