157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[23:44]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er gott að heyra að hv. þingmaður hafi ekki verið að vísa til starfa nefndarinnar því að ég er sannfærð um að hún hefur unnið þetta hratt og vel. En það eru rangfærslur sem standast ekki skoðun sem ég vil líka fá að nefna. Þegar þingmaðurinn segir að upptaka kílómetragjalds valdi stórkostlegum hækkunum á rekstrarkostnaði bifreiða — þvílík og önnur eins vitleysa. Ég hvet þingmanninn til að lesa áhrifamatið sem er með frumvarpinu, af því að það er núllstillt. Þetta mun koma betur út fyrir mjög stóran hluta af landsbyggðinni. Þetta mun auka örlítið kostnaðinn fyrir höfuðborgarsvæðið og Suðurnesin. Þetta er bara rangt þannig að ég bið þingmanninn að skoða það sérstaklega.

Svo vil ég nefna að þegar hann segir að gjöld af umferð séu ekki að skila sér til samgönguframkvæmda þá er það líka rangt. Í fjárlagafrumvarpinu eins og það liggur fyrir núna eru fjárfestingar til samgangna 72,9 milljarðar en af því að við erum náttúrlega ekki lengur með markaða tekjustofna þá er rétt að segja að bifreiðagjöld, kílómetragjöld og vörugjöld hafi verið að skila 68,7 milljörðum í tekjur af umferð. Þessi fullyrðing þingmannsins er því líka röng. Það er auðvitað áhugavert þegar þingmaðurinn reynir að þvo af sér þetta frumvarp. Þetta var samþykkt af ríkisstjórn sem hann studdi svo sannarlega, fór í gegnum ríkisstjórnina sem hann studdi, fór í gegnum þingflokkinn sem hann sat í og allt rann þetta bara ljúft í gegn. Upphaflega hugmyndin að frumvarpinu kemur fyrst og fremst fram árið 2021. Þá man ég ekki betur en að formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hafi verið fjármálaráðherra. Frumvarpið er því unnið frá grunni af Sjálfstæðismönnum. Þess vegna skil ég ekki þessa andstöðu gegn frumvarpinu. Og þessi ræða, ég held að ég þurfi bara að fá nóttina til að melta hana, það var svo mikið af röngum fullyrðingum í henni.