157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[23:46]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Já, já, það er nægur tími inn í nóttina fyrir hv. þingmann að melta þessa ræðu. Það var margt satt og rétt í ræðunni. Um áhrifamat frumvarpsins þá er ég að vitna í umsagnaraðila. Það er um það deilt. Vitnað er í það af hv. þingmanni að ég skuli skoða áhrifamatið frá ráðuneytinu. Það hefur bara ekki reynst marktækt eins og staðan er. Vitna ég þá aftur til staðfestingar á sáttmála Sameinuðu þjóðanna um fatlað fólk þar sem menn ætla að fara að hreinsa upp núna. Það þarf að setjast niður og fara yfir þetta, hvað þetta verður mikið. En í áhrifamati ráðuneytisins var sagt að þetta kostaði ekki neitt. Það bara stenst heldur enga skoðun, virðulegur forseti, að þetta sé þannig.

Ég sagði líka varðandi gjöldin að það væru tvær hliðar á því máli. Ég held að hv. þingmaður viti alveg hvað ég átti við vegna þess að hún er að vitna í tölur sem voru einmitt svör við fyrirspurn minni. Ég er búinn að vita það lengi að miðað við þau gjöld sem hafa verið lögð á umferðina á Íslandi á undanförnum áratugum þá hafa yfirleitt og alltaf farið meiri peningar til uppbyggingar samgöngukerfisins heldur en voru innheimtir af þeim gjöldum. Hitt er svo annað mál að þar er ekki inni virðisaukaskattur og annað af bílum sem aðrir aðilar eins og FÍB eru að miða við. Það er ósanngjarnt.

Menn geta líka tekið inn áhrif á heilbrigðiskerfið og hver eigi að borga brúsann af því og af umferðarslysum og löggæslu og öðru. Það er miklu skynsamlegra til að hafa skýrleikann á hreinu, til að hafa einfaldleikann að leiðarljósi að vera hér með fyrirtæki sem sér um þessa uppbyggingu sem er fyrir utan ríkissjóð. Ég hef ekki trú á þeim útfærslum sem núverandi samgönguráðherra boðar vegna þess sem ég er búinn að heyra. Vonandi gengur hún miklu lengra. Við þurfum mjólkurkýrnar, sem eru höfuðleiðirnar inn og út af höfuðborgarsvæðinu, til að geta staðið undir þeirri stóru fjármögnun sem þarf að eiga sér stað í íslensku samgöngukerfi. Það gerist ekki með þessari leið sem er verið að boða hér, því miður.