Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil fara aðeins inn á hvað það er ánægjulegt að sjá hérna í lok þessa árs að mörg þjóðþrifamál hafa verið samþykkt á Alþingi og önnur bíða afgreiðslu. Fjárlögin endurspegla líka áherslur í velferðarmálum og innviðauppbyggingu um land allt. Flokkur fólksins hefur lagt mikla áherslu á velferðarmálin og þar má nefna mörg góð mál sem skipta miklu máli fyrir unga fólkið okkar, aldraða, öryrkja og efnaminna fólk í samfélaginu. Vil ég þar nefna hlutdeildarlánin en verið er að setja stóraukna fjármuni í þann málaflokk sem mun styrkja unga fólkið og efnaminna fólk við að eignast sína fyrstu íbúð eða húsnæði hvar sem er á landinu. Þar verða skilyrðin rýmkuð og greiðslubyrðin minnkar. Einnig er áhersla ríkisstjórnarinnar á uppbyggingu óhagnaðardrifins húsnæðis sem er mjög mikilvæg. Sérstök eingreiðsla fyrir utan jólabónusinn er nú ætluð þeim tekjulægstu í hópi lífeyrisþega, skatta- og skerðingarlaust. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra var samþykktur hér á dögunum og er mjög mikilvægt að hann hafi loksins verið afgreiddur hér á Alþingi. Hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega og tenging við launavísitölu er mikið réttlætismál, eins og fæðingar-, foreldra- og sorgarleyfi er líka. Fjármunir verði settir í að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða svo tryggja megi greiðslur til öryrkja. Meðferðarstofnanir fá viðbótarfjármagn og Ljósið og fleiri endurhæfingarstofnanir fá aukið fjármagn, sem er vel.
Að lokum vil ég nefna að fullfjármagnaða innviðauppbyggingu í samgöngum víðs vegar um landið á næstu árum og er það mikilvægt. Þar er verið að setja stóraukna fjármuni í uppbyggingu og viðhald vega. 12–13 milljónir hafa farið í þann málaflokk hingað til en nú er verið að setja 17,5 milljarða í þau verkefni á næsta ári og 20 milljarða þar á eftir. Nýframkvæmdir og undirbúningur jarðganga mun hefjast af fullum krafti, sem er löngu orðið tímabært. Það er því hægt að horfa bjartsýnn fram á veginn. Verkin sýna merkin hjá þessari ríkisstjórn og það er vel.