157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

Störf þingsins.

[10:49]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Frú forseti. Ótti er öflug tilfinning og með honum hverfur oft rökhyggjan og frumstæðar hvatir taka yfir. Það getur reynst flókið að rökræða við hrædda manneskju. Popúlistar nota ótta sem pólitískt stjórntæki. Leiðtoginn finnur næstu ógn og þá næstu, magnar upp tilfinningu um óstjórn og óreiðu, heldur kjósendum sínum í varnarviðbragðinu og þannig verður hann sjálfur skilyrtur sem lausnin við óþægilegri tilfinningu, óttanum, og auðvelt er að hrífast með, meðvitað eða ómeðvitað. Ótti er raunveruleg tilfinning en mestu mistök stjórnmála á síðari árum eru að afskrifa ótta sem fordóma eða fáfræði. Þar er ég sjálf sek. En þetta er dýpra en svo. Við eigum að leggja okkur fram um að skilja hvaðan óttinn stafar, skilja rætur hans og hlúa að þeim.

Forseti. Ég held að vestræn siðmenning sé ekkert á undanhaldi en það er alveg rétt að fæðingartíðni er lág. Það er líka rétt að aðflutningur fólks er mikill og auðvitað eigum við að vernda íslenska tungu, menningu og þjóðararfinn, en ekki hvað? En þetta eru viðfangsefni, ekki ógnir. Við leysum þau ekki í óttaástandi eða með því að grafa undan grunngildum okkar. Við leysum þau með yfirvegun, gagnrýnu samtali og aðgerðum á sterkum lýðræðislegum grunni. Á alþjóðlegum degi mannréttinda vil ég því undirstrika að grunngildi vestrænna lýðræðisríkja byggjast á mannréttindum, gagnsæi, virðingu fyrir fjölbreytileika, alþjóðalögum og ábyrgri valdbeitingu. Þetta eru hornsteinarnir sem reistir voru eftir að Evrópa upplifði á eigin skinni ódæðin sem fasismi og þjóðernishyggja geta fætt af sér. Munum það.