Störf þingsins.
Forseti. Hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir kom hér upp áðan og minntist á það að einn þingflokkur hefði ekki undirritað siðareglur. Ég get upplýst um að það er þingflokkur Miðflokksins og mikið var ég ánægð og í raun og veru stolt í þessari viku að við hefðum ekki undirritað þessar siðareglur og ég mun ekki undirrita þær á mínu kjörtímabili hér. Af hverju? Vegna þess að ég held að það hafi bara allir séð í liðinni viku að þetta er tæki fyrir meiri hlutann til að berja á minni hlutanum. Það er það sem siðareglurnar eru, ekkert annað. Þess vegna segi ég: Ég er stolt af því að hafa ekki undirritað þetta. Síðan vil ég minnast á það að hér átti hv. þm. Sigríður Á. Andersen orðastað við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra Daða Má Kristófersson varðandi tillögur ríkisstjórnarinnar um að gefa skattgreiðendum heimild til að þurfa ekki að endurgreiða sjálfkrafa oftekna skatta. Svo var hæstv. ráðherra í viðtali í gær eða í morgun og þar segir hann að það sé dýrt að endurgreiða lága ofgreiðslu. Ef Skatturinn hefur rangt við þá á hann auðvitað að endurgreiða. Hæstv. ráðherra segir þetta eiga við þegar hagsmunir eru óverulegir. Hvað þýðir óverulegir? Þýðir það óverulegir hagsmunir fyrir Skattinn sjálfan? Þýðir það óverulegir hagsmunir fyrir einstaklinga, fyrir okkur sem hér búum? Þetta er auðvitað algerlega ótækt og gengur ekki upp. Svo talaði hv. þm. María Rut Kristinsdóttir um popúlisma áðan, áhugavert. En mig langar þá að segja: Er ekki popúlískt að lofa að hækka ekki skatta en svíkja það? Er það ekki popúlismi að lofa, lofa og lofa og standa ekki við orðin? Það myndi ég segja að væri frekar popúlískt. Mig langar rétt að lokum að koma inn á það sem hv. þm. Grímur Grímsson sagði en mér þótti hann tala alveg á skjön við það sem hæstv. dómsmálaráðherra segir því hún er búin að tilgreina að hún ætli að taka á þessum málum.