157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

staða skólastjóra framhaldsskóla.

[11:05]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Í gær ræddi ég mikilvægi þess að Alþingi, og þar á meðal hæstv. forseti, haldi ráðherrum við efnið, og vísaði þar sérstaklega til umræðu og ummæla hæstv. forsætisráðherra í skólameistaramálunum svokölluðu. Hæstv. forsætisráðherra brást við en ekki er annað að sjá en að þar hafi hæstv. forsætisráðherra farið með rangt mál þegar hann fullyrti að það væri ekki rétt að hann hefði haft aðkomu að brottvikningu skólameistara Borgarholtsskóla áður en það var orðinn hlutur, heldur einungis verið upplýstur um málið eftir að niðurstaðan lá fyrir. Á daginn hefur komið að hæstv. forsætisráðherra sagði, eins og ég benti á, að hann hafi verið upplýstur um þetta mál og eðli þess áður en ákvörðunin var tekin. Ég velti fyrir mér, frú forseti, hvort ekki sé einfaldlega komið tilefni til að ræða þessi skólameistaramál sérstaklega (Forseti hringir.) hér í sérstakri umræðu í þinginu fyrir áramót, því að þetta er enn að vinda upp á sig og allir skólameistarar málsins virðast vera núna í óvissu með starf sitt vegna vandræðagangs ríkisstjórnarinnar í þessu máli.