staða skólastjóra framhaldsskóla.
Frú forseti. Það er rétt að taka það fram hér, vegna orða hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, að það hefur engum skólameistara verið vikið úr starfi. Það er bara ekki rétt að segja það. Það sem búið er að gera er einfaldlega það að það er búið að nýta ákvæði í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna um það að auglýsa störfin. Það er ágætt þegar verið er að ræða svona mál sem snerta einstakar persónur í samfélaginu að gera það þá með réttum formerkjum og vera ekki að blása upp mál að óþörfu. Ég held að það sé bara einfaldlega ekki við hæfi. Þetta eru mál sem snerta mikilvægt starf í skólunum. Það sem hefur verið gert af hæstv. ráðherra er að fara í samráðsferli og mér finnst miður að hv. þingmenn séu hér að rangtúlka þetta, gera samráðið tortryggilegt. Það er einfaldlega verið að skoða hlutina í góðu samráði við aðila málsins.