157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

staða skólastjóra framhaldsskóla.

[11:09]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Alveg óháð lögskýringum hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar þá vil ég taka undir óskir um að þessi mál, skólameistarar í framhaldsskólum, verði tekin til sérstakrar umræðu fyrir jól. Og af því að það hefur verið nefnt hér að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra sé kominn í veikindaleyfi, það er staðgengill fyrir hann, það hefur verið kallað eftir því, þá vil ég kannski líka henda þeirri hugmynd hérna í pott virðulegs forseta að það gæti verið meira upplýsandi að í umræðunum tæki þátt hæstv. forsætisráðherra í ljósi þess að það hefur fram komið að hún hefur verið inni í þessum málum í aðdraganda ákvörðunar um að auglýsa ekki skólastjórastöðuna í Borgarholtsskóla í það minnsta. Þannig að það gæti verið meira upplýsandi fyrir þingheim ef hæstv. forsætisráðherra tæki þátt í þeirri umræðu fremur en staðgengill hæstv. barna- og menntamálaráðherra.