staða skólastjóra framhaldsskóla.
Frú forseti. Þessi ríkisstjórn hefur ekki mátt heyra minnst á það að breyta lögum um opinbera starfsmenn og svo kemur hér hv. þm. Sigurjón Þórðarson og segir að við séum að rangtúlka og gera tortryggilegt. En staðan er bara sú að það var nýbúið að segja við alla skólameistarana að breytingarnar sem voru gerðar myndu ekki hafa áhrif á þeirra störf. Það var nýbúið að segja það. Hér var líka minnst á leikrit fyrr í dag. Mig langar bara að segja: Það vita allir nákvæmlega hvernig í pottinn er búið. Þetta gerðist út af stóra skómálinu. Það vita það allir. Þið getið verið með eitthvert leikrit um að þetta sé eitthvað annað, en það er bara staðreynd.