157. löggjafarþing — 44. fundur, 10. des. 2025.
staða skólastjóra framhaldsskóla.
Forseti vill í tilefni orða hv. þm. Ingibjargar Isaksen, formanns þingflokks Framsóknarflokksins, taka fram að forseti tók á móti beiðni um umræður vegna stöðu framhaldsskólakerfisins í upphafi vikunnar. Eins og hv. þingmenn vita þá þurfti hæstv. ráðherra því miður að fara í veikindaleyfi en við vinnum úr þessari beiðni.