staða skólastjóra framhaldsskóla.
Virðulegi forseti. Ég finn mig knúna til að koma hingað upp í kjölfar orða hv. þingflokksformanns Samfylkingarinnar sem kom hingað upp og var að blanda inn í þessa umræðu baráttu okkar Sjálfstæðismanna fyrir afnámi áminningarskyldunnar, sem er reyndar þingmál sem ég hef mælt hér ítrekað fyrir í þinginu við mikla andstöðu frá Samfylkingunni en það var nú fyrir tíð hv. þingmanns hér á Alþingi þannig að hann e.t.v. rekur ekki minni til þessa. En það er algerlega óásættanlegt að það sé verið að blanda saman tveimur gerólíkum hlutum, þessari algerlega eðlilegu baráttu okkar fyrir því að færa lagaumhverfið til sama horfs og það er alls staðar annars staðar í Evrópu og áhyggjum okkar af því að hér sé verið að misnota og misbeita pólitísku valdi.