afbrigði.
Frú forseti. Ég kem hér upp vegna þess að ég er brennd af því frá síðasta vori að samþykkja afbrigði, þegar hér voru samþykkt afbrigði til að hægt væri að taka veiðigjöldin til umræðu sem var þvert á það sem þingskapalögin segja til um. Ég átta mig á því að hér er kannski um mjög lítið mál að ræða og það kann að vera að í einhverjum tilfellum sé ástæða til þess að þingheimur samþykki slík afbrigði. En mér finnst lærdómurinn frá síðasta vori vera sá að við eigum almennt ekki að gera það þannig að ég hef sagt við mína sannfæringu að ég ætli ekki að gera slíkt.
Ég ætla því að sitja hjá í þessari afgreiðslu og ég ætla að biðja hv. þingheim að hugsa það vel hvenær og hvort raunveruleg ástæða sé til að samþykkja afbrigði. Það er til að mynda ekki ástæða til að samþykkja afbrigði til að taka umræðu um samgönguáætlun á þeim þingstubbi sem hér er. Við gerum það bara síðar.