157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

235. mál
[11:22]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Ingvar Þóroddsson) (V):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir hönd atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024. Með frumvarpinu er lagt til að framlengja tímabil stuðningsúrræðis laga um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar um eitt ár. Sjóðnum er ætlað að bæta meiri háttar óbeint tjón á matvælum og fóðri af völdum náttúruhamfara í bænum.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gest frá atvinnuvegaráðuneyti. Nefndinni bárust tvær umsagnir um málið sem eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis. Umsagnir þessar voru stuttar og hvöttu eindregið til þess að málið yrði samþykkt. Nefndin er einhuga um afgreiðslu málsins frá nefndinni og leggur að framansögðu til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Sigurjón Þórðarson, Eiríkur Björn Björgvinsson, Bergþór Ólason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Ólafur Adolfsson. Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur álitinu. — Ég hef lokið máli mínu.