157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

210. mál
[11:31]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Dagbjört Hákonardóttir) (Sf):

Frú forseti. Það er mér mikill heiður að mæla fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

Með frumvarpinu er lagt til að innleiddar verði í íslenskan rétt skuldbindingar samnings Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja. Samningnum, sem í daglegu tali er vísað til sem BBNJ, er ætlað að útfæra skyldur ríkja til að vernda og varðveita umhverfi hafsins utan lögsögu með heildstæðu stjórnkerfi og regluverki sem fellur undir hafréttarsamning Sameinuðu þjóðanna. Samningurinn skiptist í fjóra kafla sem fjalla um nýtingu erfðaauðlinda sjávar, svæðisbundin stjórnunarúrræði, mat á umhverfisáhrifum og uppbyggingu á getu og miðlun á sjávartengdri tækni til þróunarríkja.

Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund gesti og hefur tekið við umsögnum. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Ein umsögn barst innan umsagnarfrests frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og óhætt er að telja umsögnina mjög jákvæða í garð undirritunar samningsins af hálfu Íslands, en í umsögninni kemur fram m.a. að samtökin treysti því að utanríkisráðuneytið muni með virkum hætti gæta hagsmuna Íslands á erlendum vettvangi. Án þess að ég taki mér leyfi til að tala fyrir hönd utanríkisráðuneytisins þá veit ég að málefni hafsins eru ekki bara í forgangi í íslenskri hagsmunagæslu á erlendum vettvangi heldur hefur byggst upp mjög mikil þekking sem við þurfum að byggja enn meira upp í ljósi þess að hafsbotninn getur skapað mikil tækifæri. Á honum er mikill áhugi og honum er sýndur mjög mikill áhugi af hálfu ríkja sem er að gera sig meira gildandi í síbreytilegum heimi. Þarna er um að ræða gríðarlega viðkvæma og mikilvæga auðlind fyrir jörðina alla. Í umsögn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi kemur enn fremur fram, með leyfi forseta:

„Sérstaklega er mikilvægt að árétta að öflug fiskveiðistjórnun er lykilforsenda sjálfbærrar nýtingar lifandi auðlinda hafsins og að innleiðing samningsins grafi ekki undan lögsögu og hlutverki svæðisbundinna fiskveiðistjórnunarstofnana (RFMOs), sem samkvæmt alþjóðarétti bera meginábyrgð á stjórnun fiskveiða á úthafinu. Íslenskur sjávarútvegur, sem einn af grunnatvinnuvegum þjóðarinnar, á mikið undir því að þessi meginatriði séu virt.“

Fyrir hönd utanríkismálanefndar tel ég mér óhætt að taka undir þessi orð umsagnaraðila og hef trú á því að slíkt verði áfram í forgrunni í íslenskrar hagsmunagæslu sem varða málefni hafsins. Þó verð ég að vísa til efni samningsins vegna þess að hér er auðvitað um að ræða verkaskiptingu sem fellur að hluta til undir innanlandsstýringu og svo hins vegar eru málefni sem varða íslenska hagsmunagæslu á erlendum vettvangi ekki í sjálfu sér viðfangsefni samningsins.

Í kjölfar umfjöllunar um málið vil ég taka fram fyrir hönd utanríkismálanefndar að samningurinn mun taka gildi þann 17. janúar næstkomandi. Við gildistöku verður boðað til fyrsta þingfundar ráðstefnu samningsaðilanna sem fer með ákvarðanatöku á þeim sviðum sem valdheimildir samningsins ná til. Samþykkt frumvarpsins er forsenda fullgildingar samningsins af hálfu Íslands og forsenda þess að Ísland geti haft bein áhrif á skyldur ríkja til að vernda og varðveita umhverfi hafsins samkvæmt samningnum. Nefndin telur því afar brýnt að frumvarpið verði samþykkt sem fyrst svo Ísland geti verið fullur þátttakandi á ráðstefnu samningsaðilanna í janúar.

Að mati nefndarinnar er það einnig mikið hagsmunamál að Ísland hafi áhrif á ákvarðanir um málefni hafsins og hér verður að leggja sérstaklega áherslu á að hafrétti sé haldið áfram innan þess ramma sem hann hefur verið undanfarin ár. Mikilvægt er að á alþjóðavettvangi verði brugðist með ábyrgum hætti við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni hafsins og sjávarvistkerfa sem stafar einkum af loftslagsbreytingum, súrnun sjávar, mengun í hafi og ósjálfbærri nýtingu.

Nefndin tók til skoðunar áhrif frumvarpsins á íslenskan sjávarútveg, fiskveiðistjórn og þær stofnanir sem fara með fiskveiðistjórn líkt og Fiskistofu. Nefndin lítur svo á að ekki verði gripið til ákvarðana á vettvangi laganna né samningsins á sviðum fiskveiðistjórnar enda, og þetta er mikilvægt, er þeim ekki ætlað að taka til fiskveiða, starfsemi tengdrar fiskveiðum, fisks eða annarra lifandi sjávarauðlinda sem aflað er við slíkar veiðar. Frumvarpið og samningurinn eru auk þess byggð upp á þann hátt að þeim fylgja einungis valdheimildir þar sem fyrirliggjandi valdheimildum annarra stofnana sleppir.

Utanríkismálanefnd fjallaði að auki um hvort rétt væri að skýra frekar einstök hugtök í frumvarpinu og það var niðurstaða nefndarinnar að gera ekki breytingar á frumvarpinu að þessu leyti, fyrst og fremst til þess að samræmi væri milli frumvarpsins og íslenskrar þýðingar samningsins. Nefndin vísar í þessu sambandi einnig til þeirrar meginreglu íslensks réttar að skýra skuli lög til samræmis við þjóðréttarlegar skuldbindingar hverju sinni.

Nefndin tók til skoðunar umsögn Náttúruverndarsamtaka Íslands um frumvarpið þó svo að umsögnin hafi borist eftir auglýstan umsagnarfrest. Þar er velt upp málefnalegum álitaefnum, til að mynda hvort ákvæði frumvarpsins séu fyllilega í samræmi við ákvæði samningsins. Nefndin telur svo vera og minnir á að tilgangur frumvarpsins er að gera stjórnvöldum kleift að gangast undir skuldbindingar samningsins og framfylgja þeim af heilindum.

Í umsögn samtakanna kemur fram að sú nálgun sem farin er í ákvæðum frumvarpsins um mat á umhverfisáhrifum geti verið takmarkandi og leitt til þess að upplýsingaskyldu vegna slíks mats á starfsemi innan lögsögu verður ekki mætt nema henni verði fundinn staður í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Nefndin bendir af þessu tilefni á 30. gr. frumvarpsins þar sem slík breyting á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana er lögð til. Af breytingunni leiðir að þegar líklegt þykir að framkvæmd háð innlendu umhverfismati muni hafa umtalsverð umhverfisáhrif á hafi utan lögsögu þá skuli ákvæði frumvarpsins er lúta að birtingu upplýsinga í upplýsingamiðlunarkerfi samningsins gilda.

Í umsögn Náttúruverndarsamtaka Íslands kemur einnig fram að þau telji gagn að því að útskýra frekar hvaða ráðuneyti beri ábyrgð á framkvæmd ákvarðana um svæðisbundin stjórnunarúrræði sem og á þróun tillagna um slíkar ráðstafanir og samráði um þær. Í frumvarpinu er lagt til að utanríkisráðherra beri ábyrgð á því að koma svæðisbundnum stjórnunarúrræðum til framkvæmda að íslenskum rétti með setningu reglugerðar. Snerti svæðisbundin stjórnunarúrræði fiskveiðar skuli því framfylgt í samræmi við lög um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Í svæðisbundnum stjórnunarúrræðum geta falist reglur sem varða allar tegundir athafna í hafi, t.d. skipaflutninga, fiskveiðar, efnistöku, auðlindanýtingu og orkuöflun. Til að tryggja skilvirka framkvæmd er í 3. mgr. 11. gr. frumvarpsins lagt til að reglugerðir utanríkisráðherra verði settar að höfðu samráði við ráðherra sem fara með málefni löggæslu, samgangna, sjávarútvegs, umhverfis og orkumála o.s.frv.

Að lokum spyrja náttúruverndarsamtökin hvort hætta sé á að svæðisbundin stjórnunarúrræði stangist á við lög um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, en ætlunin er að þegar úrræði snúi að fiskveiðum skuli því framfylgt í samræmi við þau lög. Hv. utanríkismálanefnd lítur svo á að sú lagalega umgjörð sem lögð er til muni gera hæstv. atvinnuvegaráðherra kleift að stjórna fiskveiðum íslenskra skipa utan lögsögu í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Því er ekki talin hætta á að til áreksturs komi milli ákvæða laganna og skuldbindingar BBNJ-samningsins. Með þessu fyrirkomulagi er verið að auka líkur til þess að útgerðarfyrirtæki fái aðgengilegan hátt upplýsingar um skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist og skyldur sem af þeim leiða.

Nefndin leggur til minni háttar breytingar sem ég tel að þarfnist ekki sérstakrar umfjöllunar hér í dag. Þær eru lagatæknilegs eðlis og vísa ég til efnis frumvarpsins þar um.

Að framansögðu virtu legg ég til fyrir hönd nefndarinnar að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir af minni hálfu hér í dag.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Pawel Bartoszek, Sigurður Helgi Pálmason, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Sigmar Guðmundsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Víðir Reynisson, og Ólafur Adolfsson.

Frú forseti. Hafið gefur, hafið tekur. Þetta vitum við, en í dag ætlum við hins vegar að gefa eitthvað til hafsins og axla ábyrgð á velferð þess umfram það sem við höfum gert til þessa. Nú er það okkar að standa vörð um það á alþjóðavettvangi, ekki aðeins fyrir Ísland heldur fyrir sameiginlega farsæld hafsbotnsins og hreinlega framtíð mannkyns því að sjórinn er gífurlega mikilvægur en við höfum vanmetið hafsbotninn og mikilvægi hans fyrir allt líf í rauninni sem þrífst á jörðinni. — Ég hef lokið máli mínu.