verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir spurninguna og ágætisvangaveltur sem við megum alveg vera dugleg að ræða í þingsal þegar við tökumst á hendur alþjóðlegar skuldbindingar og við eigum svo sannarlega að verja tíma okkar til þess.
Varðandi fyrri hluta spurningar hv. þingmanns, um það hvort efni samningsins hafi verið rýnt með tilliti til hugsanlegrar skaðabótatúlkunar á ákvæðum þess til framtíðar þá held ég að óhætt sé að fullyrða um það. Fulltrúar ráðuneytisins sóttu nefndina heim á fundi og voru með yfirgripsmikla kynningu þar. Ég verð bara að lýsa yfir talsverðri ánægju með að nefndarmenn höfðu rýnt efni frumvarpsins og voru með mjög gagnlegar spurningar og svörin voru á reiðum höndum. Það sem við vorum að leggjast yfir var hvað þetta þýði í raun fyrir Ísland og hvernig standi á því að það er kannski ekki neitt mikil tortryggni í kringum mann. Það er vegna þess að verið er að ná fram mikilli sátt um að við berum sameiginlega ábyrgð á hafsbotninum. Ég vísa til IV. kafla frumvarpsins sérstaklega, varðandi stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar. Ég er með tilliti til skaðabótatúlkana ekki með neina kristalskúlu í höndunum um hvað gæti vaknað upp sem einhvern veginn skapandi stund í túlkunum. Ég vildi óska þess að ég hefði það. Þá bara treysti ég á að íslensk hagsmunagæsla muni standa vörð um íslenska hagsmuni. Það verður svo sannarlega ekki vöntun á stuðningi af hálfu undirritaðrar við íslenska hagsmunagæslu hvað það varðar. Hvað varðar friðsamlega notkun á t.d. erfðafræðilegum efnum, ég geri ráð fyrir því hér og segi þetta með fullum fyrirvara, ég bara biðst forláts hafi ég rangt eftir, en ég tel að hér sé bara um að ræða nýtingu sem fari fram í viðskiptalegum tilgangi sem er ekki til þess fallin að valda öðrum ríkjum eða aðilum eða lögaðilum tjóni.