157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

210. mál
[11:45]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. framsögumaður málsins hefði getað losað sig snarlega við spurninguna mína um friðsamlegan tilgang með því að svara því að það þýddi allan tilgang sem ekki höfðaði til stríðsátaka. Hv. þingmaður kaus hins vegar að svara með ítarlegri hætti sem gefur mér svolítið tækifæri til að óttast túlkun á þessu vegna þess að hv. þingmaður nefndi að með friðsamlegum tilgangi væri mögulega verið að vísa til þess að það myndi ekki skaða hagsmuni annarra þjóða. Þar erum við nú komin út í ansi skapandi lögskýringu á því ef Íslendingar ættu ekki að geta nýtt sér auðlindir hafsins jafnvel þótt það geti komið illa við einhverja viðskiptahagsmuni annarra þjóða. Þetta er ágætt dæmi um hversu fljótt svona skilgreiningar og svona skuldbindingar geta undið upp á sig með óvæntum neikvæðum afleiðingum fyrir þá sem takast á hendur þessar skuldbindingar.

En látum það liggja á milli hluta. Mig langar að spyrja þá í seinna andsvari — af því að nefnd er ástæðan fyrir því að þetta er komið á þessum tímapunkti inn í þingið. Það liggur á þessu vegna fundar sem haldinn er 17. janúar á næsta ári, eftir nokkrar vikur. Mér finnst bagalegt að svona mál sé að koma hér inn í þingið — sem er áhugavert mál og ég hefði viljað að við gætum tekið langa umræðu í þessu máli en við erum meðvituð um að þessa dagana stendur yfir fjárlagagerð, fjárlagaumræða og þetta mál er svokallað dagsetningarmál. Þess vegna langar mig að spyrja hvort hv. þingmaður viti um hvað verði fjallað þar sérstaklega og hvort það liggi fyrir nákvæmlega hvaða mikilvægu ákvarðanir um framkvæmd þessa samnings verða teknar á þessum fundi sem valda því að Íslandi liggur svona á að samþykkja þessi lög núna en ekki t.d. bara í vor, þ.e. af því að við viljum sitja þennan fund í janúar. Ef hv. þingmaður hefði í grófum dráttum einhverja hugmynd um það.