157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

210. mál
[11:52]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Við ræðum hérna mál sem verðskuldar meiri athygli en það fær, sem er nú oft reyndin, og að einhverju leyti er það vegna þess að málið kemur fullseint til afgreiðslu eins og hér hefur verið rætt. En ég tek undir með hv. formanni utanríkismálanefndar að í nefndinni gekk samstarfið vel og við fengum ágætisupplýsingar um það sem þar fór fram eins og kom fram í máli framsögumanns einnig.

Það sem mig langar að koma fram með og leggja áherslu á eru í raun og veru tveir þættir, fyrir utan frumvarpið sjálft. Það er sú staðreynd að ef við tökum jörðina okkar, hnöttinn okkar, þá minnir mig að um 30% af honum séu land. Þar búa þessir 8 milljarðar manna og eru á mörgum svæðum farnir að ofnýta það land með tilheyrandi vandræðum fyrir náttúruna og fyrir fólkið sjálft, dýralíf, fjölbreytileika og sitthvað fleira. Restin af plánetunni okkar, jörðinni, 70%, er sjór, er haf. Það er alveg augljóst að til þess að brauðfæða og nýta í því skyni að gera lífskjör fólks og allra dýra og lífvera eins góð og hægt er þá þurfum við bæði að vernda mikilvæga hluta af hafinu en við þurfum líka að nýta miklu meiri hluta af hafinu.

Það hafa verið uppi sjónarmið úti í hinum stóra heimi þar sem margir leggja áherslu á að loka heilu hafsvæðunum. Það hefur verið talað um að 30% af þessum 70% eigi bara að vernda, loka, til að búa til verndarsvæði fyrir allt milli himins og jarðar, sem væri þá 21% sirka af plánetunni sem við tækjum bara til hliðar, sem er ekki tilfellið þegar við erum að tala um landið á jörðinni sem við erum kannski farin að ofnýta. Með öðrum orðum: Við þurfum að finna einhverjar leiðir til að geta nýtt hafið með meiri og betri hætti en um leið þurfum við að tryggja ákveðna vernd.

Sú leið sem við Íslendingar höfum farið er að við höfum verið mjög virkir þátttakendur á sviði hafréttarmála og þeirra samninga sem lúta að því hvernig við verndum og nýtum hafið. Það hefur skipt okkur miklu máli. Ég nefni úthafsveiðisamninginn sem fjallar um hvernig við eigum að umgangast veiðar á stofnum sem eru flökkustofnar og fara um, hafnríkjasamninginn þar sem við erum að reyna að taka á ólögmætum veiðum, óeftirlitsskyldum eða ótilkynntum, sem er umtalsvert umfang í heiminum og mjög margir stofnar sem við nýtum eru ofveiddir, satt best að segja.

Okkar vegferð, okkar markmið, okkar leiðir, okkar áherslur hafa ævinlega verið þær að með góðu fiskveiðistjórnarkerfi getum við náð miklu betri tökum á vernd og nýtingu, ekki með því að loka svæðum heldur stýra notkun á svæðum eftir því sem við á. Í þessu hefur okkur gengið mjög vel, satt best að segja, í samanburði við aðrar þjóðir. Þess vegna hefur verið hlustað eftir sjónarmiðum Íslands á þessu sviði. Þess vegna er mjög mikilvægt að við séum virkir þátttakendur þegar kemur að því að gera samning utan lögsögu, eins og hér er verið að fjalla um, sem á að taka á þessum fjórum þáttum; nýtingu erfðaauðlinda sem hér hafa verið nefndar, svæðisbundnum stjórnunarúrræðum, mati á umhverfisáhrifum og síðan uppbyggingu á getu og miðlun á sjávartengdri tækni til þróunarríkja. Við erum til að mynda ein af þeim þjóðum sem höfum í okkar þróunarstarfi lagt mjög mikla áherslu á að kenna öðrum að nýta tækni sem hefur síðan hjálpað íslenskum fyrirtækjum að hasla sér völl víða um heim og þarna er ákveðið samhengi í hlutunum. Við höfum verið mjög virkir þátttakendur í hafréttarsamningnum og þess vegna er mjög mikilvægt að við höldum því áfram. Það er eðlilegt að einhverjir sem vita ekkert um þetta frumvarp og þennan samning byrji að óttast að það séu hugsanlega einhverjar krækjur af þessu og þetta verði til þess fallið að við lendum í einhverjum pyttum. Þess vegna er mikilvægt að við hér í þessum sal tökum þessa umræðu, til að útskýra að þessi samningur varðar ekki fiskveiðar. Hann varðar fyrst og fremst þessa þætti sem ég var að telja hérna upp og hafa komið fram í máli framsögumannsins fyrr í dag.

Hins vegar verðum við að taka með okkur þær áherslur og þá vegferð sem við höfum verið að leggja á í öllum þessum málum og þá skiptir ekki máli hvaða hlutir það eru, þá erum við alltaf að koma úr þeirri átt að segja: Með góðu fiskveiðistjórnarkerfi, með öðrum hætti með öðrum stjórnunarkerfum, þá er það besta leiðin til að finna þetta jafnvægi á milli verndar og nýtingar til að koma í veg fyrir að skynsamleg nýting verði stöðvuð en um leið getum við verndað með betri hætti heldur en bara að loka heilu hafsvæðunum, sem hefur verið stemningin í hinum stóra heimi hjá fólki sem skilur ekki okkar vegferð. Þess vegna er svo mikilvægt að við séum virkir þátttakendur í þessu alþjóðasamstarfi um þessa hluti og komum þessum sjónarmiðum á framfæri.

Ég get nefnt sem dæmi ráðstefnu sem kölluð var „Our Ocean“ og var haldin m.a. af Bandaríkjamönnum ásamt fleirum, fyrst í Bandaríkjunum. Þar var okkur ekki boðið en síðan var haldin ráðstefna í Síle og þar var okkur boðið. Ég fór á þá ráðstefnu sem sjávarútvegsráðherra. Þar var uppi rosa stemning. Þar mættu einhverjir auðkýfingar, Richard Branson með alveg hóp af fólki með sér, John Kerry þá utanríkisráðherra Bandaríkjanna og alls konar og stemningin var bara: Verndum allt hafið, á fyrstu „session“, rosa mikið hrópað húrra og hæ, rosa gaman. Svo kom „session“ 2. Þá mætti sjávarútvegsráðherra Íslands og útskýrði að það er hægt að ná verndun fram með öðrum hætti. Það var ekki eins mikið um húrrahróp og gleðiöskur í salnum en það komu mjög margir fulltrúar annarra ríkja til okkar eftir þá ræðu og sögðu: Já, þetta er leiðin, þetta er skynsamlega leiðin, ekki bara að segja: Verndum 21% af 70% af heiminum, af jörðinni, heldur gerum þetta á skynsamlegan hátt. Þess vegna er svo mikilvægt að við séum þátttakendur í þessum samningi.

Þess vegna er mikilvægt, þrátt fyrir að hann komi hingað á síðustu stundu, nokkrum dögum fyrir jól, þegar við erum önnum kafin við að klára fjárlög og fjárlagatengd mál — þá verðum við bara að viðurkenna að þetta er dagsetningarmál, vegna þess að ef við mætum ekki til stofnfundar, sem er 17. janúar næstkomandi, ef ég man rétt að ég hafi séð það í nefndarálitinu eða rifjað upp fyrir nefndinni, þá missum við af því tækifæri að verða þátttakendur í að verða fullgildir aðilar með fulltrúa í þeim undirnefndum sem verða settar á laggirnar á þessum stofndegi og verðum heldur ekki beinir þátttakendur í því að marka þá leið sem ákvarðanaferli þessa samnings á að fara. Ef við og líkt þenkjandi þjóðir erum ekki þátttakendur þá getur komið til einhverrar oftúlkunar eða mistúlkunar, sem hér var verið að flagga að gæti gerst, en með því að vera þátttakendur og leggja áherslu á okkar skynsömu leiðir sem við höfum verið með í fiskveiðistjórnarkerfinu og nýtingu hafsins þar sem við erum svo góð í að geta nýtt en um leið verndað með betri hætti heldur en bara að loka fyrir svæðin þá getum við tekið þátt í því að leggja okkar sjónarmið þar inn. Það er eftirspurn eftir þeim, samanber það sem ég nefndi áðan með ráðstefnuna í Síle forðum daga.

Mér fannst eiginlega mikilvægt að koma hingað upp, annars vegar að taka stóru myndina á því að ef við nýtum ekki hafið — og utan lögsögu ríkja er auðvitað umtalsvert hafsvæði sem verður einhver keppni um ef við ætlum að reyna að tryggja sífellt betri lífskjör fyrir allan þann hóp manna sem búa á 30% af jörðinni, því að við búum ekki mörg á sjónum nema bara tímabundið, þá er mjög mikilvægt að þessi gildistaka gangi. Það þýðir að við þurfum að klára okkar verkefni hér í þinginu til þess að við getum verið virkir þátttakendur á stofnfundinum í janúar. — Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.