verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.
Virðulegur forseti. Ég held að ég hafi nú líka haldið þessu fram. Í nefndarálitinu er reyndar, og ég fór að rifja það upp þegar hv. framsögumaður málsins, Dagbjört Hákonardóttir, fór að taka hérna upp með þennan fund, einmitt sagt: Samningurinn mun taka gildi þennan tiltekna dag og í kjölfarið verður boðað til fundar. En það verður bara boðað til fundar með þeim sem eru stofnaðilar á þessum tiltekna degi. Fundurinn sjálfur er ekki þar, það er ónákvæmt og ég held að ég hafi líka gert mig sekan um að halda því fram. Ég vil bara árétta, og ég held að við hv. þingmaður séum sammála um það, að það er svo mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að taka þátt í þessu. Ég man eftir því sem barn að það var verið að fjalla um þátttöku okkar í umræðum um hafréttarsáttmála og þær persónur sem þar voru voru bara í fréttunum á hverju kvöldi, alla vega það oft að ég man enn þá eftir þessu úr fréttatímanum frá því að ég var barn. Og af hverju skyldi það vera? Jú, það er vegna þess að það eru gríðarlegir hagsmunir undir. Okkur hefur auðnast að gera þetta býsna vel og vera virkir þátttakendur í alls konar samningum er lúta að hafinu, landhelginni, útvíkkaðri landhelgi. Það er áfram mikilvægt þegar kemur til kasta nýs samnings sem er að taka á valdheimildum sem eru hvergi í öðrum samningum er varðar utanlögsöguauðlindir og einhverja stjórnunarþætti að við séum virkir þátttakendur þar, alveg eins og við höfum verið í Norður-Atlantshafsráðinu og í öðrum samskiptum líkt þenkjandi ríkja eða ríkja sem deila sömu hagsmunum og við eða eru að takast á um hagsmuni nýtingar á sambærilegum svæðum.