verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.
Herra forseti. Þetta er athyglisvert mál sem er hér til umræðu. Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég þekki kannski helst til lítið til þessa máls en mér sýnist margt hérna vera æði áhugavert og einnig það sem fram kemur í nefndarálitinu. Mig langar til að forvitnast hjá hv. þingmanni hvernig hann skilur eða þekkir til varðandi það hvort við séum að sinna þessu á einhvern hátt í dag, þ.e. hvort við séum þátttakendur í einhverjum verkefnum sem eiga sér stað á þessum svæðum. Erum við að skilgreina sjálf? Erum við að hafa einhverjar skoðanir á því t.d. hvort veiðar innan íslensku fiskveiðilögsögunnar geti haft áhrif á þessum svæðum? Og af því að ég er nú áhugamaður um ýmislegt varðandi þara þá velti ég fyrir mér varðandi þetta sem kallað er hér erfðaauðlindir sjávar, ég átta mig ekki alveg á fyrir hvað nákvæmlega þetta stendur en ég geri nú ráð fyrir því að þarna sé þá bæði átt við plöntur og mögulega dýr. Aftur kannski sama spurningin: Erum við í dag að sinna þessu með einhverjum hætti eða er þetta algjört nýmæli?