verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.
Virðulegur forseti. Ég veit að hv. þingmaður þekkir eitthvað til málsins enda einn af þeim sem undirrita nefndarálitið. Ég var svo heppinn að sitja nefndarfund þar sem við tókum málið út en var kannski ekki á fundinum þar sem við fengum bestu upplýsingarnar frá þeim sem hafa unnið við gerð samningsins núna síðustu árin. Satt best að segja eru allir á nefndarálitinu, úr öllum flokkum, nema hv. formaður Miðflokksins var fjarverandi við afgreiðslu málsins. En ég býst við að hann sé nú bara sammála þessu máli, ég gæti ímyndað mér það án þess að ég þekki það.
Hv. þingmaður spyr: Erum við að gera eitthvað í þessu? Já, við erum að gera alls konar hluti. Við gætum örugglega verið að gera miklu meira en við höfum haft áhyggjur af því að þar sem þessi samningur gildir utan lögsögu — við erum með okkar lögsögu og við höfum verið að sækja fram landgrunnsupplýsingar og lengja þar af leiðandi valdsvið okkar yfir landgrunninu langt, langt út fyrir 200 mílurnar. Þetta hefur verið mikil vinna í mörg ár en við höfum blessunarlega náð bara góðum árangri þar. Hérna gildir það líka að í mörg ár höfum við verið að hafa áhyggjur af þessu og verið að vinna í áttina að þessum samningi sem nú er að verða að veruleika. Ég held að það komi fram einhvers staðar, annaðhvort í umsögnum eða í málinu, að það hafi verið gert frá árinu 2018. Árin þar á undan hafa menn þá verið að undirbúa að það sé hægt að koma þessu í eitthvert ferli. Þetta er kannski svona dæmi um hið alþjóðlega samstarf. Það tekur óratíma og þú verður að hafa úthald og þú verður að hafa skoðun og þú verður að vera á staðnum. Þess vegna finnst mér mikilvægt að við afgreiðum þetta mál til að tryggja að við verðum það áfram sem virkir þátttakendur og mikilsvirtir í þessu máli.