157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

210. mál
[12:12]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir svörin. Þau voru góð. Ég er að velta fyrir mér aðeins fleiru af því að þetta er auðvitað áhugavert. Ef við tökum bara t.d. flökkustofna í fiskveiðum, auðvitað getum við haft alls konar skoðanir á því hvernig gengur að vinna úr sameiginlegum stofnum en maður hefur svona pínu áhyggjur af því að það hafi kannski verið of lítið samstarf á milli aðila. Þannig að hættan hefur verið sú að það hefur verið hreinlega um verulega ofveiði jafnvel að ræða úr ákveðnum stofnum. Maður veltir fyrir sér ef t.d. uppeldisslóðir einhverra fiska sem eru hér flökkufiskar, hvort svona samningur gæti verið til þess fallinn að tryggja að menn væru — ég veit að hann fjallar ekki sérstaklega um fiskveiðar en að menn gætu alla vega haft eitthvað um það að segja að uppvaxtarsvæði t.d. stofna sem mögulega ganga inn í okkar landhelgi, að það sé horft til þess að það sé t.d. ekki verið að ofveiða slíkt. Einnig velti ég fyrir mér varðandi álit frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, sem mér finnst vera ákaflega skynsamlegt og ég ætla kannski að vísa þar til möguleikans á því að reka risafiskeldi í lokuðum kvíum, í rauninni kannski í fljótandi kvíum sem geta verið hvar sem er, hvort svona samningur gæti t.d. tryggt að það yrði samkomulag um slíkt innan þessara svæða.