157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

210. mál
[12:15]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir spurningarnar. Ég er kannski ekki endilega besti maðurinn til að svara þeim öllum en ég held að við getum alla vega lagt eitthvað gott til. Það eru þessir fjórir kaflar sem samningurinn snýr að. Þó að hann snúist ekki um fiskveiðar eða eitthvað slíkt þá kemur grunnurinn að þessum samningi úr úthafsveiðisamningnum, hann kemur úr hafnríkjasamningnum sem FAO hefur staðið fyrir og það eru undanþágur um fiskveiðar, sem kemur nú reyndar fram í umsögn SFS. Ég man ekki eftir að sérfræðingarnir hafi tiltekið sérstaklega, og þó, að íslenska sendinefndin í samningaviðræðunum hafi átt verulegan þátt í að tryggja þetta tiltekna orðalag, hvernig það er orðað, að undanskilja það sem lýtur að fiskveiðistjórn vegna þess að það er í öðrum fyrirkomulögum. Við erum til að mynda í Norður-Atlantshafsfiskveiðiráðinu og þar erum við með öll ríkin á þessu svæði þar sem við erum að fjalla um — það samkomulag gæti auðvitað gengið betur enda eru menn að takast á um hagsmuni.s

En í þessum fjórum köflum er eitt tiltekið, sem er svæðisbundið stjórnunarúrræði. Eins og ég skildi sérfræðingana snerist það um að þar gætu ríki, sem hafa sameiginlega hagsmuni á tilteknu svæði, komið saman og náð niðurstöðu um einhverja svæðisstjórnun en þau þurfa að koma sér saman um hana. Það getur ekki einhver einn gert eitthvað annað. Það er það sem þessi samningur er að fara að veita möguleika á, að það sé hægt og koma þá í veg fyrir eftirlitslausar og tilkynningalausar og jafnvel óleyfisaðgerðir, ekkert endilega varðandi fiskveiðar heldur kannski varðandi aðra þætti sem lúta að nýtingu hafs utan lögsögu ríkja.