157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

hafnalög.

310. mál
[12:21]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Guðbrandur Einarsson) (V):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi umhverfis- og samgöngunefndar til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. Um er að ræða einfalt frumvarp sem felur í sér framlengingu á bráðabirgðaákvæðum í hafnalögum sem falla að óbreyttu úr gildi um áramót.

Annars vegar er um að ræða breytingu á ákvæði til bráðabirgða II. Með því var eigendum hafna gefinn frestur til 1. janúar 2026 til að senda innviðaráðuneytinu endurskoðuð ákvæði í hafnarreglugerðum um stærð og takmörk hafnarsvæða á sjó með hliðsjón af nýjum viðmiðunum um hafnarsvæði sem komu inn í hafnalög sumarið 2024. Þar sem leiðbeiningar ráðuneytisins til eigenda hafna um afmörkun hafnarsvæðis samkvæmt hinum nýju viðmiðunum liggja enn ekki fyrir leggur nefndin til, að beiðni ráðuneytisins, að fresturinn verði lengdur um eitt ár eða til 1. janúar 2027.

Hins vegar er um að ræða breytingu á ákvæðum sem snúa að heimildum Hafnabótasjóðs til fjármögnunar á hafnarframkvæmdum sem ekki eru tilgreindar í samgönguáætlun. Fyrir liggur að ráðast þarf í tilgreindar ríkisstyrktar framkvæmdir á höfnum á árinu 2026 þar sem þær framkvæmdir koma ekki fram í samgönguáætlun sem samþykkt hefur verið á Alþingi. Líkt og krafist er í 1. tölulið 3. mgr. 26. gr. hafnalaga er Hafnabótasjóði óheimilt að óbreyttu að fjármagna þessar nauðsynlegu framkvæmdir.

Alþingi samþykkti síðast þingsályktanir um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024 og um samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034, nr. 40/150 og 41/150, í júní 2020. Þingsályktunartillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030 var útbýtt 3. desember síðastliðinn og er gert ráð fyrir að mælt verði fyrir henni áður en langt um líður. Til að nýta megi fjármagn úr Hafnabótasjóði sem Alþingi ráðstafar til hans er því lagt til að ákvæði til bráðabirgða III í lögunum verði framlengt þannig að heimilað verði að ráðstafa fé úr sjóðnum til hinna nauðsynlegu framkvæmda án þess að framangreindu efnisskilyrði 1. töluliðar 3. mgr. 26. gr. sé fullnægt. Verður þó áfram gert ráð fyrir því, í samræmi við 3. gr. 26. gr., að samþykki ráðherra þurfi til og er lagt til að heimildin gildi þar til Alþingi hefur samþykkt nýja samgönguáætlun, þó ekki lengur en til 1. janúar 2027.

Þar sem ákvæði til bráðabirgða IV er um sama efni og ákvæði til bráðabirgða III er lagt til að það verði fellt brott úr lögunum. Að síðustu er lagt til að lögin taki þegar gildi þar sem mikilvægt er að breytingarnar nái fram að ganga fyrir áramót.

Virðulegi forseti. Þetta er einfalt framlengingarmál en þó nauðsynlegt til að hægt sé að fara í nauðsynlegar hafnarframkvæmdir. Nú er komin fram samgönguáætlun sem fer til meðferðar í þinginu innan skamms og að lokinni samþykkt hennar fellur þessi heimild Hafnabótasjóðs úr gildi. Ég vil, virðulegi forseti, þakka allri nefndinni fyrir að hafa lagt þetta mál fram og sameinast um það af því að eins og mörg önnur mál sem við erum að takast á við þessa dagana er hér um að ræða dagsetningarmál sem nauðsynlegt er að við klárum fyrir áramót.

Virðulegur forseti. Ég hef lokið máli mínu.