hafnalög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég veit það og þekki það að það gerist stundum hérna á þinginu að nefndir eru beðnar um að flytja mál fyrir ráðherra. Það er þá iðulega vegna þess að það er tímapressa í málinu. Ég er nú kannski bara að koma hingað upp og benda á að þó að hægt sé að finna rök fyrir því og ég heyri hér að hér hafi verið almenn sátt í nefndinni, og það sé nauðsynlegt að hægt sé að greiða út úr Hafnabótasjóði, þá finnst mér þetta samt bara svolítil áminning fyrir okkur varðandi fagleg vinnubrögð og varðandi það að vera í tíma, að við tökum það öll til okkar og þá ráðuneytin auðvitað sérstaklega, því að ég held að þetta hafi nú verið svolítið fyrirsjáanlegt. Það var öllum ljóst að það þyrfti áfram að greiða út úr Hafnabótasjóði og töluvert örugglega áður en langt leið á nóvember. Ég átta mig alveg á því að annir eru miklar í ráðuneytunum en ég er kannski frekar að brýna okkur þingmenn til að hafa aga á okkar ráðherrum og ráðuneytum. (Forseti hringir.) Það er auðvitað eðlilegt að svona mál komi fram frá ráðuneytunum sjálfum. Það er ekkert talið ólöglegt við slíka framlagningu hér og við höfum gert það. En eins og ég segi, það er hægt að gagnrýna það vegna þess að gagnrýni nefndarinnar er örugglega takmörkuð á sín eigin mál.