157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

hafnalög.

310. mál
[12:45]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Guðbrandur Einarsson) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta andsvar. Það er auðvitað bara ágætt ef við getum náð eitthvað utan um allar þær fjárhæðir sem við erum að vinna með hverju sinni. Við fáum væntanlega einhverjar upplýsingar um það, en ég gleymdi, virðulegur forseti, að minnast á það áðan í framsöguræðu minni að að sjálfsögðu legg ég til að málið fari til 2. umræðu hér í þingsal. Það skiptir okkur máli að við höldum áfram með þetta og klárum þetta áður en við förum í jólafrí.