skipti á dánarbúum o.fl. og erfðalög.
Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi allsherjar- og menntamálanefndar um breytingu á lögum um skipti á dánarbúum o.fl. og erfðalögum, framlenging bráðabirgðaheimilda. Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði til bráðabirgða, annars vegar í erfðalögum og hins vegar í lögum um skipti á dánarbúum o.fl., sem að óbreyttu renna úr gildi þann 31. desember 2025, verði framlengd um eitt ár. Með þeim ákvæðum er kveðið á um heimild til að beita rafrænum lausnum og fjarfundarbúnaði í ákveðnum tilvikum við meðferð mála á grundvelli laganna. Heimildirnar hafa reynst vel í framkvæmd og leggur nefndin því til að tilgreindar bráðabirgðaheimildir verði framlengdar til að tryggja samfellu í framkvæmd. Allsherjar- og menntamálanefnd hefur nú til umfjöllunar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna stafrænnar og rafrænnar málsmeðferðar hjá sýslumönnum og dómstólum, í máli 231. Verði það frumvarp að lögum munu heimildir á grundvelli þeirra laga leysa þessi ákvæði til bráðabirgða af hólmi og mun nefndin þá samhliða leggja til að þau falli brott.
Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu og legg til að lokinni þessari umræðu að frumvarpið gangi til 2. umræðu.