157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

skipti á dánarbúum o.fl. og erfðalög.

333. mál
[15:08]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir mjög skörulega framsögu hérna, líklega með stystu framsögum sem ég hef heyrt hér í þinginu, en hann kom öllu til skila engu að síður. Ég ætla bara að vera með eina spurningu, ekki tvær. Mig langar bara að spyrja hv. þingmann hvort hann viti af hverju ekki er búið að breyta þessu og af hverju við erum ekki búin að taka inn þessi frumvörp sem eru núna í vinnslu. Hvað tefur að þau séu bara komin inn þannig að við séum bara búin að afgreiða þessar breytingar sem þarf að gera? Þetta er brýnt mál og ég held að hér séu allir sammála um það. En af hverju erum við ekki búin að ganga frá því og værum þá núna að ganga frá þessu endanlega?