157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

skipti á dánarbúum o.fl. og erfðalög.

333. mál
[15:10]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér eiginlega snerist hugur um að koma ekki upp aftur eftir ágætt og gott svar. Ég verð að segja að þetta svar fannst mér til fyrirmyndar upp á það að gera að þarna ætlar nefndin að gefa sér góðan tíma í að skoða mál; góðan tíma í að liggja yfir málum, vinna þau vel og gefa sér tíma í að skila frá sér vonandi betri afurð. Ég vona að þessi vinnubrögð — miðað við annað sem við höfum séð koma inn þar sem umsagnir eru með þeim hætti að mál eru illa unnin, það er ekki verið að horfa til athugasemda o.s.frv. Þetta hefur verið af mörgum málum eitt af því helsta sem stjórnarandstaðan hefur verið að benda á, hvaða mál eru illa unnin. Það er verið að reyna að keyra þau í gegnum nefndir, það er verið að hafna gestakomum o.s.frv. Það er meira að segja verið að taka inn mál núna þar sem umsagnarfrestur er ekki liðinn. Þetta svar hjá hv. þingmanni bara vakti með mér þá þörf að koma upp aftur og hrósa þessum vinnubrögðum. Ég vona að þau verði til eftirbreytni í vinnslu á öðrum frumvörpum í meðförum þingsins hjá hv. meiri hluta.