kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilega yfirferð og gott að gera þessum mikilvægu umsögnum góð skil í þessari umræðu því að þær eru margar hverjar býsna samhljóða sem gefur þeim í raun aukið vægi að hinir ólíku aðilar í samfélaginu eru oft og tíðum að koma auga á mjög sambærilega galla í frumvarpinu. Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann, þó að það hafi ekki verið hluti af þessari ræðu, um samskipti hv. þingmanns hér í gær við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur og eru þessari skattheimtu tengd sem við fjöllum um hér. Það varðar muninn á framsetningunni á framlögum annars vegar síðustu hæstv. ríkisstjórnar og hins vegar þeirrar sem nú situr til samgönguáætlunar. Að mati þess sem hér stendur voru það mjög áhugaverð samskipti. Ég upplifði það sem svo, frú forseti, að þær upplýsingar sem hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson kom fram með hefðu einhvern veginn ekki verið að komast til skila en ég tel að þær skipti máli og þess vegna hefði ég viljað beina þeirri beiðni og spurningu um leið til hv. þingmanns að fara aftur yfir þetta og reyna eins og hann framast getur að hafa það svolítið myndrænt þannig að það sé líklegra að það skili sér inn í umræðuna hér í framhaldinu.