157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:00]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið. Ég hef fyrir því nokkuð traustar heimildir að þessir aðilar ásamt Samtökum ferðaþjónustunnar séu á harðahlaupum úti um allan heim að reyna að útskýra fyrir til að mynda ferðaskrifstofum, þessum viðskiptavinum sínum, hvaða staða er að teiknast upp. Spurningarnar sem þeim eru að berast að utan eru: Já, ókei, og hvað höfum við langan tíma til að aðlaga okkur að þessu? Eru það tvö, þrjú ár eða? Nei, og þá erum við búin að setja okkar fulltrúa í þá stöðu að þurfa að útskýra fyrir þeim að það séu nokkrir dagar þangað til að það taki gildi.

Mig langar sérstaklega að vitna í eitt samtal sem ég átti við aðila sem var staddur úti í heimi að reyna að koma í veg fyrir að hann missti mikil viðskipti. Hvurs lags bananalýðveldi er þetta? Því auðvitað skilur ekki nokkur maður úti í heimi hvernig þjóðríki dettur í hug að gera slíkar breytingar á atvinnulífinu með þessum fyrirvara. Í þessu samhengi má líka spyrja, því að það þarf alltaf að vera pínu gaman líka, hv. þingmaður, og mér varð hugsað til þeirra sem búa til að mynda í Útkinn í Þingeyjarsýslu, af því að það var nú búið að nefna hér Bárðardal í svipuðu samhengi af hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni: Ætli þeim þætti það ekki bara kostur, verandi gerðir greiðendur að þessum skatti, íbúum í Útkinn, að það væri vegur í sveitinni? Það er reyndar ágætisreiðgata, prýðileg reiðgata. Það er hægt að fara með rekstur þarna en það er ekki hægt að kalla þetta veg og samt á að ofurskattleggja þessa íbúa.

Fyrst og fremst langar mig að spyrja þá út í hitt: Hvurs lags stjórnsýsla er þetta? Hvernig getum við ætlað íslensku atvinnulífi að útskýra slíkar breytingar með nokkurra daga fyrirvara?