kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Við ræðum hér kílómetragjaldið og byrjuðum þá umræðu í gærmorgun. Mig langar kannski að beina til forseta, þar sem er nú um að ræða flokksmann Viðreisnar, því sem var sett á samfélagsmiðla í gær af þingflokksformanni Viðreisnar og kom mér töluvert á óvart, svona í samhengi við lýðræðislega umræðu og annað og vegna þess að það er mikið til umræðu í dag sem er kallað á íslensku bræðibeita. Hv. þingflokksformaður Viðreisnar setti inn í gær: „Það vorar snemma á aðventunni.“ Hann er að gagnrýna það að í þingræðum er kominn í 1. og 2 . umræðu listi þingmanna, meira að segja í 1. umræðu kemur kommentið: Það vorar snemma á aðventunni. Við erum rétt að byrja umræðu hér um enn eitt skattpíningarmálið frá Viðreisn, Samfylkingunni og Flokki fólksins og þá kemur eitthvert svona komment í 1. umræðu og meiri hluti allra þessara þingmanna er bara að bíða eftir að komast í fyrstu ræðu. Það vorar snemma á aðventunni — með einhverri agalegri meiningu þar á bak við. Ef þetta eru ekki andlýðræðisleg sjónarmið gagnvart þessari umræðu sem er hér, gagnvart þingsalnum, gagnvart þeirri málefnalegu umræðu sem fer fram hér, þá veit ég ekki hvað þingflokksformaður Viðreisnar er að fara, hvort þetta snúist bara um það að vera ekkert að ræða málin yfirleitt. Á bara ekkert að vera nein umræða um hlutina? Það er ekki skrýtið að það leggist margir gegn þessu máli vegna þess að þetta er enn eitt skattpíningarmálið, enn ein skattheimtan sem er undir merkjum þess að allt eigi að ganga til vegagerðar í landinu, til samgangna. Þannig var því háttað um veiðigjöldin í sumar, vörugjöldin þetta haustið og enn eitt málið sem er þetta mál, kílómetragjaldið, að allt eigi að fara til samgangna, 18,3 milljarðar samtals í viðbót. Nú er mikilvægt að við fylgjumst með á næstu misserum hvort þetta skili sér nú ekki allt til viðbótar við það sem áður hefur verið talað um.
Í ræðu hér í gær fór ég svolítið í gegnum ferðaþjónustuhluta þessa máls, um fyrirsjáanleikann, samkeppnishæfni Íslands, sem á bara almennt við um atvinnulífið, en þetta kemur sérstaklega niður á samkeppnishæfni í ferðaþjónustunni, okkar stærstu atvinnugrein. 33% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar í fyrra komu frá ferðaþjónustunni, þriðjungur, og fór hæst árið 2018 upp í 42%. Það hefur verið boðað að ganga enn frekar og lengra inn í þá skattpíningu gagnvart ferðaþjónustunni á næstu misserum. Í þessu máli er ljóst að ferðaþjónustan á Íslandi hefur mótmælt kílómetragjaldi harðlega og varað við því að það geti haft neikvæð áhrif á samkeppnishæfni greinarinnar, sérstaklega á landsbyggðinni. Fyrirtæki sem eru í bílaleigurekstri, hópferðaakstri og ferðaþjónustan almennt hefur bent á að gjaldið hækki rekstrarkostnað verulega þar sem starfsemin byggist á löngum akstri um landið. Í þessu samhengi eru áhyggjur af því að þetta muni bitna mest á þeim svæðum sem eru lengst frá höfuðborgarsvæðinu; norðurhluta landsins, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi. Það mat hefur reyndar ekki farið fram í þessu máli, hvaða áhrif það mun hafa. Það er ljóst að þetta getur leitt til þess að ökudagarnir og ferðalagið styttist og að fólk sæki ekki eins langt út á landsbyggðina og það gerir í dag. 64% af öllum ferðamönnum á Íslandi leigja sér bílaleigubíl. Þetta hlutfall þekkist hvergi annars staðar. Það er verið að selja flug og bíl.
Í þessu máli er líka árstíðasveiflan sérstaklega tekin fyrir sem menn eru búnir að reyna að berjast gegn núna árum saman, sérstaklega úti á landi, fjærst höfuðborgarsvæðinu. Það hefur gengið ágætlega hér á suðvesturhorninu og Suðurlandi að ná niður árstíðasveiflunni en það hefur gengið verr þar sem lengra er að fara. Þar gegna bílaleigubílarnir gríðarlega stóru hlutverki þar sem þeir dreifa raunverulega og ná upp nýtingunni á þeim svæðum. Þá þurfa þeir að ná þangað, fólkið sem er að keyra þá þarf tíma, ferðamennirnir þurfa tíma til að komast alla leið. Það eru þessir bílaleigubílar sem hafa mest áhrif, fólkið í þeim, á það hvernig tekjurnar af gjaldeyristekjum af ferðaþjónustunni dreifast. Þannig að þetta er mjög stórt mál sem liggur hér á bak við og við skulum hafa í huga þegar erlendur ferðamaður er að skoða hvort hann eigi að heimsækja Ísland, og við vitum það að í dag er svolítið hart í samkeppninni við t.d. Noreg og Finnland, að það er dýrt að sækja Ísland heim. Það hefur alltaf verið dýrt og mun alltaf vera það, og kannski á að vera það, en það er óþarfi að fara svona hart gegn ferðaþjónustunni. Þá er það flugið sem erlendir ferðamenn skoða, verðlagning á því, það er gistingin og það eru bílaleigubílar. Þetta er sérstaðan á Íslandi. Það bætist við að fólk skoðar hvað bílaleigubílar kosta vegna þess hversu almennt þetta er.
Það hefur verið bent á það líka í þessu máli að kílómetragjaldið bitni ójafnt á byggðum landsins og muni kannski í stóru myndinni koma harðast niður á þeim svæðum sem eru lengst frá Reykjavík og sérstaklega í gegnum áhrif á flutningsverð á vörum, bæði framleiðslu og því að flytja aðföng út á landsbyggðirnar, að þetta muni hafa áhrif á flutninga og kostnað við flutninga.
Svo skulum við hafa í huga að ferðaþjónusta á Íslandi er mjög dreifð og margar helstu náttúruperlur landsins liggja langt frá þjónustu og þéttbýliskjörnum. Fyrirtæki sem eru utan höfuðborgarsvæðisins og þeir sem þurfa að sækja sín aðföng, eins og ég kom inn á, um langan veg í framleiðslu á vörum og sækja vörur þurfa að keyra mun lengri vegalengdir en þekkjast á höfuðborgarsvæðinu og í næsta nágrenni við það.
Mig langar að koma hér að umsögn Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, sem Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar undir, framkvæmdastjóri SSNE, og, með leyfi forseta, vitna aðeins í þá umsögn. Þar stendur:
„Jöfnunaráhrif og samkeppnishæfni landsbyggðar.
Kílómetragjald mun leggjast hlutfallslega þyngra á atvinnugreinar sem reiða sig á langar flutningsleiðir, m.a. sjávarútveg, landbúnað, byggingariðnað og ferðaþjónustu. Á Norðurlandi eystra eru þessir geirar undirstaða byggðar og verðmætasköpunar. Hækkun flutningskostnaðar mun óhjákvæmilega leiða til hærra vöruverðs og veikja rekstrargrundvöll fyrirtækja í landshlutanum. Stjórn SSNE telur því afar mikilvægt að innleidd verði varanlega lægri gjaldflokkun fyrir nauðsynlega flutninga til og frá dreifðum byggðum landsins, eða í það minnsta að tryggja að áhrif gjaldsins á atvinnulíf, verðlag og byggðaþróun verði metin innan skamms tíma og að breytingar verði gerðar ef í ljós kemur að áhrifin eru verulega íþyngjandi.“
Nú veit ég ekki hvað hefur verið farið í gegnum þetta inni í hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem snýr að þessu en þetta er það sem er kallað eftir, t.d. á Norðurlandi eystra sem liggur lengst frá höfuðborgarsvæðinu, að þess verði gætt í meðhöndlun málsins og afgreiðslu og þar með vitna ég í það sem kemur fram þar. Lykilatriði hér er að ferðaþjónustan hefur varað við því að gjaldið muni hækka verð til ferðamanna, þessi aukna skattheimta af kílómetragjaldinu, og þar sem Ísland er talið dýr áfangastaður getur jafnvel tiltölulega lítil verðhækkun haft áhrif á eftirspurn, sérstaklega meðal verðnæmra ferðamanna. Verðteygnin í ferðaþjónustu er náttúrlega þekkt og er litið til hennar. Hér erum við enn að fara út að mörkum sem snúa að henni, þessari svokölluðu verðteygni, með þessari auknu skattheimtu sem er boðið upp á hér í þessari umræðu sem við ræðum hér.
Fyrirsjáanleiki og samkeppnishæfni, (Forseti hringir.) herra forseti, eru lykilatriði. Þetta mál er slæmt. Þetta er enn eitt skattpíningarfrumvarpið sem kemur hér fram og ég legg til og við Sjálfstæðismenn (Forseti hringir.) að það verði hætt við þessa aukaskattlagningu sem hér er lögð fram.