157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:35]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Verðteygni og neysluhegðun — þetta er nú þekkt í viðskiptafræðum og víða annars staðar. Auðvitað myndi þetta líka hafa áhrif á íbúa. Það er verið að draga úr lífskjörum þeirra sem búa á svæðum og búa við lakari kjör að þessu leyti. Hér er verið að bæta sérstaklega í vöruflutningana og það er gríðarlega stór þáttur á landsbyggðinni. Við þekkjum það að flutningskostnaður er gríðarlega dýr og við sem erum að kaupa vörur og annað og erum fá sent og síðan náttúrlega bara almennt í viðskiptum. Þetta á náttúrlega líka við aðföng í iðngreinum og annars staðar sem eru að veita ákveðna þjónustu á ákveðnum sviðum sem eru mjög háð flutningum. Ég hef þá trú að þessi þáttur hafi sífellt farið hækkandi svona hlutfallslega í rekstri fyrirtækja með árunum. Þetta er gríðarlega stórt og mikið hagsmunamál þegar við erum að tala um lífskjör fólks á landsbyggðinni. Það er mikill munur og maður verður var við það náttúrlega í gegnum tíðina eftir að maður kom á þing og hefur verið meira hérna megin á suðvesturhorninu að þessi viðhorf eru náttúrlega allt önnur, þau eru svo ólík að mörgu leyti. Fólk sem býr við þær aðstæður sem eru hér í kringum þennan vinnustað, þinghúsið, á mjög erfitt með að hugsa sér hvernig þessu er komið á fámennari stöðum víða um landsbyggðina. Það er náttúrlega bara verið að draga úr lífskjörum fólks. Þetta er ekkert flókið. Við þekkjum það, við hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson, verandi þingmenn fyrir Norðausturkjördæmi, að þetta er stórt og mikið mál sem margir hafa mjög miklar áhyggjur af.