157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:42]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Þetta frumvarp sýnir glöggt hvernig ríkisstjórnin hugsar um skattlagningu, samgöngur og uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi. Þetta frumvarp er prófsteinn á það hvort Alþingi ætli að standa með fólkinu í landinu, með atvinnulífinu og landsbyggðinni eða með sífellt stærra bákni og skattheimtu sem færist fjær venjulegu fólki. Við ræðum hér frumvarp sem felur í sér grundvallarbreytingu á því hvernig við látum borgara landsins greiða fyrir vegakerfið. Í stað kerfis sem allir skilja þar sem eldsneytisgjöld eru innbyggð í lítrann sem við greiðum á dælu á að taka upp nýtt, þungt og flókið kerfi þar sem hver kílómetri er skráður, reiknaður og rukkaður eftir á. Það er mikilvægt að rifja upp hvernig við komumst á þennan stað. Vandinn sem á sínum tíma var bent á var raunverulegur. Þegar hlutfall rafbíla og annarra vistvænna bíla jókst fóru tekjur ríkisins af eldsneytisgjöldum að dragast saman. Það þurfti að tryggja að allir sem væru að nota vegakerfið legðu sitt af mörkum til vegakerfisins. Af þeirri ástæðu var stigið fyrsta skrefið og tekið upp kílómetragjald á rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla. Með því var tekjugrunnurinn tryggður á nýjan hátt fyrir þá bíla sem ekki borguðu eldsneytisgjöld. Síðan gerði Alþingi annað og á 155. löggjafarþingi var ákveðið að staldra við. Við féllum frá hugmyndinni um kílómetragjald á öll ökutæki og ákváðum að halda áfram með núverandi kerfi eldsneytisgjalda en hækka kolefnisgjald til að mæta tekjusamdrætti. Þannig var tryggt að eigendur allra ökutækja, óháð orkugjafa, tækju þátt í að greiða fyrir vegakerfið. Vandinn var leystur. Það liggur skýrt fyrir í nefndaráliti okkar þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Samt kemur ríkisstjórnin nú aftur með sama gamla planið nánast óbreytt þrátt fyrir að tekjuvandinn hafi verið leystur og þrátt fyrir að engin heildstæð áhrifagreining liggi fyrir um hvað þessi kerfisbreyting þýðir fyrir íslenskt samfélag, fyrirtæki, heimili, ferðaþjónustuna og landsbyggðina.

Virðulegi forseti. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki flokkur sem segist alltaf vera á móti breytingum. Við erum flokkur ábyrgra breytinga. Við styðjum orkuskipti, við styðjum tækniframfarir, við styðjum fjármögnun innviða en við verðum líka að spyrja okkur þeirrar spurningar hvort sú kerfisbreyting sem hér er lögð til sé skynsamleg, sanngjörn og hagkvæm. Mitt svar er skýrt: Nei. Frumvarpið um kílómetragjald á öll ökutæki er hvorki skynsamlegt, sanngjarnt né hagkvæmt. Í fyrsta lagi er kerfið óþarflega flókið. Núverandi kerfi eldsneytisgjalda er einfalt, gegnsætt og skiljanlegt. Gjaldtakan fer fram á dælu. Þú sérð strax hvað þú borgar. Það þarf ekkert sérstakt eftirlitskerfi, það er engin ný skráningarskylda, ekkert reglufargan. Frumvarpið um kílómetragjald gerir hins vegar ráð fyrir að ríkið þurfi tölvukerfi og mannskap til að taka á móti skráningum fyrir yfir 300.000 ökutæki. Það þarf að senda út reikninga, leiðrétta, elta uppi og innheimta. Bara seðilgjöldin fyrir alla þessa reikninga koma til með að hlaupa á tugum milljarða króna. Það er ekki góð stjórnsýsla að skipta út einföldu og skilvirku kerfi sem gengur vel fyrir kerfi sem er flóknara, dýrara og meira íþyngjandi fyrir almenning og fyrirtæki. Það er andstætt heilbrigðri og almennri skynsemi.

Í öðru lagi eru áhrif frumvarpsins á atvinnulífið, sérstaklega á ferðaþjónustu og bílaleigur, alvarleg. Samtök ferðaþjónustunnar hafa lagt fram mjög ítarlega greiningu á áhrifum kílómetragjaldsins. Þar kemur fram að kílómetragjaldið mun hækka verð á útleigu bílaleigubíla um 12–17% þar sem gjaldið leggst hlutfallslega þyngst á vetrarvertíðina þegar verðin eru lægst. Við vitum að um 64% erlendra ferðamanna sem koma til Íslands velja bílaleigubíl sem aðalferðamáta. Bílaleigubíllinn gerir fólki kleift að fara út fyrir höfuðborgarsvæðið og aka um landið sem hefur fengið nýtt líf vegna ferðaþjónustu. Ef við hækkum verð á útleigu bíla án þess að ferðamaðurinn sjái á móti lægra eldsneytisverð þá vitum við nákvæmlega hvað gerist. Færri velja Ísland fram yfir aðra áfangastaði, færri bóka lengri ferðir, fleiri stytta dvöl og fólk fer styttri vegalengdir. Minna verður keyrt um landið. Minna verður verslað á litlu stöðunum, minna gist á landsbyggðinni. Þannig leggur kílómetragjaldið stein í götu tveggja yfirlýstra markmiða ferðaþjónustu og stjórnvalda sem eru að dreifa ferðamönnum betur um landið og minnka árstíðasveiflur.

Virðulegi forseti. Samkvæmt þjóðhagslíkani hagrannsókna sem Samtök ferðaþjónustunnar hafa látið vinna er áætlað að upptaka þessa annars skrefs kílómetragjaldsins muni leiða til lækkunar á vergri landsframleiðslu, minni fjárfestingar og minni útflutningstekna. Á ársgrundvelli er talað um milljarða króna í verri afkomu fyrir þjóðarbúið. Ég spyr: Er það virkilega stefna ríkisstjórnarinnar að leggja nýtt íþyngjandi gjald á eina aðalútflutningsgrein okkar Íslendinga, sem stendur undir um þriðjungi af útflutningstekjum þjóðarinnar, án þess að hafa unnið heildstæða og trúverðuga greiningu á áhrifunum? Hvernig samræmist það ábyrgri efnahagsstefnu?

Í þriðja lagi skapar kílómetragjaldið óhagræði og óvissu sem rekstraraðilar, sérstaklega bílaleigur, ráða einfaldlega ekki við. Nú þegar hafa bílaleigur þurft að fjárfesta í upplýsingatækni, breyta innri ferlum, ráða starfsfólk til að skrá, afstemma og skila kílómetragjaldi vegna rafbíla og tengiltvinnbíla. Innheimtuhlutfallið þar hefur verið um 70%. Fyrstu mánuðina var það jafnvel aðeins 15–30%. Þessi reynsla segir okkur að þegar kerfi er nýtt, ferlar eru óskýrir og viðskiptavinirnir skilja ekki gjaldið þá sitja fyrirtækin uppi með stóran hluta kostnaðarins. Samkvæmt greiningu ökutækjaleiga innan Samtaka ferðaþjónustunnar gæti beinn kostnaður við innheimtu kílómetragjaldsins fyrir greinina numið allt að 1,5 milljörðum kr. á ári. Þá er ekki talið með það kílómetragjald sem ekki næst að innheimta frá viðskiptavinum. Þetta er ekki eitthvert smáatriði, þetta eru raunverulegir peningar sem annars gætu farið í nýtt fólk, nýjar fjárfestingar, nýja bíla, nýjar ferðir og ný verkefni á landsbyggðinni. Við verðum líka að horfa á áhrifin á smærri fyrirtæki og venjulegt fólk, fyrirtæki sem reka marga bíla, sveitarfélög, verktaka, smærri atvinnurekendur sem eiga kannski tvo eða þrjá bíla, heimili þar sem fólk þarf að keyra um langan veg í vinnu eða með börn í skóla og íþróttir; þau munu þurfa að sinna skráningum, yfirfara reikninga og sinna kvörtunum og leiðréttingum. Þau munu þurfa að taka á sig aukinn kostnað sem þau hafa hvorki tíma né mannskap til að sinna. Það sem var áður einföld greiðsla á dælu verður að allsherjarskriffinnskuverkefni og það er ekki það sem við ættum að vera að gera á tímum þar sem bæði heimili og fyrirtæki búa við hækkandi vexti, verðbólgu og aukið regluverk.

Í fjórða lagi blasa við byggðasjónarmið sem geta ekki verið ríkisstjórninni ókunn. Kílómetragjald er í eðli sínu gjald á fjarlægð. Því lengra sem þú þarft að keyra því meira borgar þú. Það þýðir að fólk á landsbyggðinni sem hefur engan kost annan en bílinn mun bera þyngri byrðar en þeir sem búa á þéttbýlustu svæðunum með stuttar vegalengdir og besta almenningssamgöngukerfið. Þetta er einföld staðreynd. Kílómetragjald leggst þyngst á þá sem hafa ekki val um að forðast það. Það er ekki sanngjarnt og það gengur gegn jafnræði og það gengur gegn því markmiði að halda landinu öllu í byggð.

Í fimmta lagi er það spurning um traust til stjórnvalda og fyrirsjáanleika. Ferðaþjónustan lifir á langtímasamningum. Bílaleigur hafa nú þegar leigt út stóran hluta bílaflotans fyrir næsta ár. Þeir samningar liggja fyrir. Þeir fela ekki í sér kílómetragjald. Það er hreinlega ómögulegt að bæta slíku gjaldi við eftir á. Þess vegna er hættan sú að stór hluti gjaldsins endi einfaldlega á reikningi fyrirtækjanna sjálfra. Þetta er ekki leiðin til að byggja upp traust milli ríkis og atvinnulífs. Þetta er heldur ekki leiðin til að sýna að Ísland sé fyrirsjáanlegt land til að fjárfesta í, hvorki fyrir innlenda né erlenda fjárfesta.

Virðulegi forseti. Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að frumvarpinu verði hafnað í heild sinni. Við teljum ekki þörf á þessari kerfisbreytingu. Vandinn sem upphaflega átti að leysa hefur þegar verið leystur með kílómetragjaldi á hreinorkubíla og hækkun kolefnisgjalds. Það er engin ástæða til að taka upp nýtt, þungt og flókið kerfi fyrir alla. Við segjum: Leyfum núverandi kerfi eldsneytisgjalda að renna sitt skeið á meðan orkuskiptin ganga yfir. Fylgjumst vel með tekjuflæðinu. Bregðumst við ef þörf er á en tökum ekki í einu vetfangi upp kerfi sem hækkar kostnað, dregur úr samkeppnishæfni og flækir líf fólks. Lækkum skatta á fólkið í landinu. Það er ekki svona flókið. En jafnvel þó að stjórnarmeirihlutinn ætli af einhverjum ástæðum að þröngva þessu frumvarpi áfram þá liggja fyrir mjög hófstilltar og skynsamlegar tillögur frá Samtökum ferðaþjónustunnar um aðlögun. Þau leggja til að annaðhvort taki kílómetragjaldið gildi síðar, og árið 2026 verði notað til að vinna með ökutækjaleigum að betri og hagkvæmari útfærslu fyrir stórnotendur, eða að tekið verði upp stighækkandi fyrirkomulag þar sem bílaleigur greiða aðeins hluta gjaldsins fyrstu árin og fá þannig tíma til aðlögunar. Það er ekki verið að biðja um mikið. Það er verið að biðja um sanngirni, fyrirsjáanleika, samstarf og aðlögun. Það er verið að biðja um að Alþingi renni ekki blint í sjóinn með skattkerfisbreytingu sem getur haft langvarandi neikvæð áhrif á stærstu gjaldeyrisskapandi atvinnugrein þjóðarinnar og fjölmörg störf á landsbyggðinni.

Virðulegi forseti. Margrét Thatcher sagði eitt sinn að það væri enginn hlutur sem héti opinbert fé, það væri aðeins fé skattgreiðenda. Þegar við ræðum kílómetragjald erum við ekki að ræða peninga ríkissjóðs í einhverju tómarúmi. Við erum að ræða heimilisbókhaldið hjá fjölskyldum sem keyra börnin í íþróttir, rekstur hjá litlu bílaleigufyrirtæki á Norðurlandi og arðsemi fjárfestinga í nýju hóteli á Austfjörðum. Það er okkar ábyrgð að vega og meta og velja leiðir sem styðja verðmætasköpun en kæfa ekki verðmætasköpun, að velja einfaldleika fram yfir óþarfar flækjur. Sjálfstæðisflokkurinn vill standa með þeim sem skapa verðmæti. Við viljum standa með ferðaþjónustunni, með bílaleigunum, með atvinnulífinu og fjölskyldunum sem þurfa á bíl að halda til að komast í vinnu og skóla. Við viljum tryggja fjármögnun vegakerfisins án þess að brjóta niður þá krafta sem skapa störf og tekjur.

Virðulegi forseti. Af öllum þessum ástæðum sem ég hef hér upptalið mun ég ekki styðja þetta frumvarp. Ég hvet þingheim til að hafna því, staldra við og fara aðra leið, leið sem byggir á ábyrgð, sanngirni og skynsemi, leið sem styrkir íslenskt atvinnulíf í stað þess að veikja það. Við ætlum að byggja hér áfram sterkt, samkeppnishæft og frjálst samfélag. Þar á kílómetragjald á öll ökutæki ekki heima.